Dæmi eru um að mæður týndra barna á höfuðborgarsvæðinu hafi brotist gegnum læstar hurðir og vaðið inn í hús með hurðarkarminn á öxlunum þegar þær þykjast vita að barnið þeirra sé í neyð á staðnum.
Þetta upplýsir Guðmundur Fylkisson, maður ársins. Hann hefur verið áberandi í samfélaginu síðustu vikur vegna leitar hans sem lögreglumanns að týndum börnum.
Í samtali við Björn Þorláks við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld, ræðir Guðmundur eigin bernsku, persónuleg áföll, úrræði og úrræðaleysi gagnvart börnum í vanda og dregur ekkert undan.
Guðmundur segist hafa kynnst mörgum sterkum mömmum og ömmum við leit hans að týndum börnum. Sumar hafi fengið fíleflda karlmenn til að verða „skíthrædda“ og „grjóthalda kjafti“ eins og hann orðar það.
Sjá örstutt brot úr viðtalinu hér á eftir. Viðtalið verður sýnt í heild á Samstöðinni í kvöld.
Ljósmynd af Guðmundi: Pétur Fjeldsted
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.