Þorvaldur Gylfason hagfræðingur er ekki hrifinn af inngripi Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrum forseta Íslands. Ólafur berst hatrammlega gegn því að Íslendingar segi já í kosningunni 29. ágúst þessa mánaðar um framhald viðræðna við ESB.
Össur Skarphéðinsson, fyrrum utanríkisráðherra, tjáði sig um inngrip Ólafs Ragnars í vikunni og gagnrýndi hann, sem „vinur er til vamms segir“.
„Þvílík endalaok,“ skrifar einn fyrrum ráðherra um inngrip Ólafs.
Samstöðin ræddi við Ögmund Jónasson fyrrum ráðherra í gærkvöld. Ögmundur vandar ESB ekki kveðjurnar og mun segja nei. Þorvaldur Gylfason ætlar hins vegar að segja já en rætt var við hann í gærkvöld að loknu samtali Gunnars Smára við Ögmund.
„Mér finnst það vera lítilmótlegt,“ segir Þorvaldur um inngrip Ólafs Ragnars. „Fyrrum forseti á að sitja á friðarstóli í stað þess að hella sér út í viðkvæm deilumál eins og hann hefur gert.“
Þá kallar Þorvaldur Baudenbacher sem flutti erindi á samkomu með Ólafi Ragnar „Rússadindil“. Sjá viðtölin tvö hér, annars vegar við Ögmund og hins vegar Þorvald.