Allt að 90% þeirra sem taka magasýrulyf gætu hætt á þeim án neikvæðra fylgifiska. Svefnlyf hætta að bæta svefn þeirra sem nota þau eftir um mánaðar samfellda notkun.
Þetta og margt fleira áhugavert kom fram hjá Önnu Birnu Almarsdóttur, prófessor í lyfjafræði við Kaupmannahafnarháskóla, í samtali við Ásdísi Olsen við Rauða borðið á Samstöðinni í gærkvöld. Anna Birna segir Íslendinga hafa of mikla trú á lyfjum og vill hjálpa fólki út úr „lyfjasúpunni“. Hún er vísindamaður og starfandi apótekslyfjafræðingur. Brýnt er að endurskoða lyfjanotkun landsmanna að hennar sögn. Fólk haldi oft áfram að taka lyf einfaldlega vegna þess að því hafi einhvern tíma verið ávísað þeim.
Svefnlyf eru að sögn lyfjafræðingsins aðallega framleidd til að hjálpa fólki yfir tímabundnar krísur. Við langvarandi notkun geta þau valdið ávana og aukið hættu á byltum og meiðslum, sérstaklega hjá eldra fólki. Þegar hún ræði við fólk í apótekinu um að hætta á svefnlyfjum, segist hún gjarnan fá sömu viðbrögðin:
„Já, þetta virkar fyrir mig. Ég get ekki sofið án þeirra.“
Vandinn sé að fólk geti fengið fráhvarfseinkenni þegar það hættir og nauðsynlegt sé að draga smám saman úr notkuninni með faglegri aðstoð.
Horfið á þáttinn með því að smella á myndina að ofan.