Krefst afsagnar lögreglustjóra

Gunnar Gíslason lögmaður segir að lögreglan á Akureyri sé gjörsamlega vanhæf í því að takast á við ýmis viðkvæm verkefni. Gunnar krefst afsagnar lögreglustjóra.

Í fréttum í vikunni var greint frá því að Akureyrarlögreglan hefði skotið 18 ára dreng með rafbyssu og að hann liggi á spítala.

Gunnar hefur verið verjandi drengsins. Segir hann í færslu á facebook að síðan í janúar hafi umbjóðandi hans“ upplifað mikið einelti af hálfu embættisins fyrir norðan“. Meðalhófsreglur hafi verið þverbrotnar. Ett málanna sé að sérsveitarmaður á Akureyri hafi handleggsbrotið vin skjólstæðings lögmannsins, sem þá var undir lögaldri. Sérsveitarmaðurinn sæti rannsókn vegna málsins.

En margt sé ónefnt. Fyrir sex dögum hafi ruðst sérsveit inn á heimili drengsins og móður hans, um miðjan dag, með þannig látum að talið var eðlilegt að brjóta niður útidyrahurðina, en skattgreiðendur hafi nú þegar tekið þann reikning. Löreglan hafi virt að vettugi ítrekaðar beiðnir mannsins um að fá Gunnar sem verjanda þvert á lög.

„Í gærkvöldi leið skjólstæðingi mínum svo illa, að hann á leið heim til sín brotnaði niður, grét og lagðist niður á umferðareyju á Akureyri. Er lögregluliðið mætti á staðinn, sem taldi 3 lögreglubíla og 6 lögreglumenn, varð hann svo hræddur, vegna fyrri afskipta, að hann reyndi að hlaupa í burtu. Hann var óvopnaður.

Skjólstæðingur minn hætti hlaupum eftir stutta stund, er hann áttaði sig. Lögreglumaður greip þá upp rafbyssu og skaut skjólstæðing minn, án nokkurrar aðvörunar, í búkinn,“ segir Gunnar lögmaður.

Skjólstæðingur hans var svo vistaður nakinn í fangaklefa, án haldbærra skýringa. Eftir að honum var sleppt reyndi móðir drengsins að fara með hann á sjúkrahúsið á Akureyri en fyrir utan sjúkrahúsið missti hann meðvitund.

„Hvort það hafi verið vegna afleiðinga beitingar rafbyssunnar eða þeirrar staðreyndar að lögreglan færði honum engan mat á meðan hann var í haldi skal ósagt, enda er ég enginn læknir. Skjólstæðingur minn var færður á börur og brunað var með hann í forgangi inn á bráðamóttökuna á Akureyri, þar sem hann er nú inniliggjandi, illa haldinn á bæði á líkama og sál eftir aðfarir lögreglunnar. Sú staðreynd að skjólstæðingur minn er á sjúkrahúsi hefur m.ö.o. ekkert með hefðbundið verklag lögreglu að gera, líkt og staðhæft var í fyrstu fréttum af málinu,“ segir Gunnar og bætir við hrinu hneykslismála fyrir norðan:

„Það er ekkert eðlilegt við ofangreint, ekki frekar en vitleysuna með leikfangabyssuna í sumar, dökku strákana níu sem handteknir voru á FM95BLÖ tónleikunum vegna litarhafts síns, Samherjasímamálið og mörg álíka mál – og löngu orðið tímabært að Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra, Páley Borgþórsdóttir, axli ábyrgð á þeirri (ó)menningu sem virðist viðgangast innan lögreglunnar á Akureyri, þar sem valdi er daglega misbeitt og lög ítrekað virt að vettugi – og hún taki pokann sinn, ásamt þeim yfirmönnum embættisins sem bera ábyrgð á stöðunni í Þórunnarstræti.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí