Stefán Blackburn reyndi að ræna hraðbanka 2006

Í fréttum dagsins var greint frá ráni á hraðbanka í Mosfellsbæ aðfaranótt mánudags. Þá var greint frá því að farið hefði fram húsleit af sérsveit lögreglu heima hjá Stefáni Blackburn en hann er sem kunnugt er í gæsluvarðhaldi núþegar vegna gruns um aðild að manndrápi í hinu svokallaða Gufunesmáli. Í frétt vísis þvertók lögregla fyrir að málin tengdust með einhverjum hætti, eðlilega kannski. Ólík brot og talsvert langt á milli.

En hversvegna þá húsleit?

Sem sérleg áhugamanneskja um störf lögreglu lagðist undirrituð í létt „gúggl“ að loknum fréttum Samstöðvarinnar (sem sjá má hér fyrir neðan) og viti menn!

Á tímarit.is er að finna úttekt DV frá 2007 um feril ungra afbrotamanna og þar segir meðal annars frá því að í nóvemberlok árið 2006, hafi téður Stefán Blackburn, ásamt tveimur öðrum, gert álíka tilraun til að ræna hraðbanka úr afgreiðslu Landsbankans við Klettháls. Hraðbankinn sem þeim ku hafa tekist að losa úr veggnum hafði að geyma tæpar fjórar milljónir í reiðufé. Líkt og sjá má á úrklippunni hér að ofan komust Stefán og félagar þó ekki langt, misfórst að koma bankanum á pall bílsins. Þeir létu sig hverfa.

Það skal ósagt látið hvernig lögregla telur að Stefán tengist málinu í Mosfellsbæ og hvort hann sé yfirhöfuð grunaður um að hafa fjarstýrt aðgerðunum. Þá er víst að Stefán Blackburn er ákveðinn frumkvöðull hvað hraðbankana varðar.

Hér má svo sjá fréttir kvöldsins eins og var lofað fyrir ofan.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí