Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, fyrrum þingmaður, rifjar upp vegna mannsins sem brenndist alvarlega og hefur verið fluttur á erlendan spítala vegna brunasára sinna, að Jón Gunnarsson, fyrrverandi dómsmálaráðherra, hafi í raun tekið ólögmæta ákvörðun um að gefa lögreglu heimild til að bera rafbyssur.
Þetta kemur fram í grein Þórhildar Sunnu á Vísi:
Tvennum sögum fer af því hvort rafbyssuskot löggu á Suðurnesjum á mann sem hafði hellt yfir sig eldfimum vökva hafi kveikt eld í manninum eða hvort hann hafi sjálfur kveikt í sér með kveikjara.
Grímur Atlason hjá Geðhjálp brást við fréttinni við Rauða borðið á Samstöðinni í gær og ræddi skaðsemi þessara vopna og hvernig fordómar kunna að hafa spilað inn í stórháskaleg viðbrögð lögreglu.
Þá er harðlega gagnrýnt að öggan hafi farið fram á að vitni að atburðunum myndi eyða sönnunargögnum, upptökuúr síma vitnisins.
Þórhildur Sunna skrifar:

“Þegar Jón Gunnarsson, þáverandi dómsmálaráðherra tók fyrirvaralausa og ólögmæta ákvörðun um að gefa lögreglu heimild til þess að bera rafbyssur sagði hann okkur að þannig yrði almenningur öruggari. Að þannig yrðu mál lögreglu leyst með minni valdbeitingu en annars þyrfti.
Fulltrúar lögreglunnar, sem talað höfðu hástöfum fyrir því að fá að bera rafbyssur sögðu okkur meðal annars að það væri skárra að fá í sig rafstraum heldur en kylfuhögg. Rafbyssur væru okkur því öllum til góða, í stað kylfuhöggs fáum við nokkur þúsund volt beint í æð. Enda skárra.
Þegar fréttir bárust fyrst af því að lögreglan hafði skotið mann í andlegu ójafnvagi sem hellt hafði yfir sig bensínvökva, ekki einu sinni heldur tvisvar með rafbyssu sagði Lögreglustjórinn á Suðurnesjum okkur að það sé „minna inngrip að nota slíkt vopn [rafbyssu] heldur en til dæmis að grípa til skotvopna.“ Ég spyr mig hvort maðurinn sem liggur nú þungt haldinn á spítala í Noregi með brunasár á um 50% líkamans sé sammála þessari yfirlýsingu lögreglustjórans.”
Sjá grein Þórhildar Sunnu á Vísi hér: Rafbyssugríman er fallin – Vísir