Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, bendir á að Katrín Jakobsdóttir eigi líklega skilið ólympíugull í hræsni. Hann segir að ekki sé langt síðan hún hafi baðað sig í sviðsljósinu sem sérstakur verndari afganskra kvenna. Á sama tíma mun ríkisstjórn hennar standa að því að afgönsk kona með læknismenntun verður hent úr landi og beint í faðm Talíbana.
„Fyrir örfáum vikum skipulagði Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra sérstakan hliðarviðburð á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna undir yfirskriftinni: Styðjum afganskar konur í að endurheimta mannréttindi („Supporting Afghan Women Reclaiming their Human Rights“). Baðaði forsætisráðherra sig þar í sviðsljósinu í útlöndum sem sérstök baráttukona fyrir réttindum afganskra kvenna,“ segir Kristinn á Facebook og heldur áfram:
„Hér heima er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur að vísa Noorinu Khalikyar úr landi, afganskri konu með læknismenntun sem á enga framtíð í heimalandinu undir stjórn Talibana. Hjásetustjórnin stefnir á ólympíugull í hræsni“