Hundruð þúsunda Evrópubúa munu deyja af völdum hitabylgja og efnahagslegur kostnaður hækkandi sjávarmáls getur orðið 150 billjónir króna, ef ekki verður brugðist mun harðar og mun fyrr við í baráttunni gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Evrópsku umhverfisstofnunarinnar (EEA) sem kom út í dag. Í henni segir að álfan sé ekki undirbúin undir þær sívaxandi hættur sem lofslagsbreytingar hafa í för með sér. Evrópa er það meginland í heiminum þar sem loftslag hitnar hraðast og stefnir í hörmulegar afleiðingar af þeim völdum.
Í skýrslunni segir að nauðsynlegt sé að vinna að stefnumótun í tengslum við heilsugæslu, landbúnað og mikilvæga innviði, í ljósi þess að hitabylgjur og þurrkar sem áður voru sjaldgæfir atburðir í Evrópu séu nú æ algengari.
Í skýrslunni kemur fram að yfir 60 þúsund manns hafi látist af völdum ofur hitabylgja í Evrópu árið 2022. Árið 2021 brunnu yfir 60 þúsund hektarar í skógareldum á Ítalíu sem kviknuðu af völdum hita og þurrka. Sama ár ollu flóð í Þýskalandi, Belgíu og Hollandi tjóni upp á 149 milljarða íslenskra króna og í fyrra ollu flóð í Slóveníu tjóni sem metið var að jafnvirði ríflega 10 prósenta af landsframleiðslu landsins.
Ef ekki verið gripið til róttækra aðgerða nú þegar er raunveruleg hætta á að þær hættur sem loftslagsbreytingar hafa í för með sér verði orðnar að hörmungum fyrir lok aldarinnar. Í skýrslunni segir að ólíklega muni draga úr þeim hættum jafnvel þó að heimsbyggðinni takist að ná markmiðum Parísarsáttmálans, um að hitastig hækki ekki umfram 1,5 gráðu á Celsíus miðað við það sem var fyrir iðnbyltingu.
Í síðustu viku greindi Samstöðin frá því að síðustu tólf mánuði hefði meðal hitastig í heiminum mælst yfir 1,5 gráðu markinu, í fyrsta skipti yfir svo langt samfleytt tímabil.