Það virðist samdóma álit flestra að Joe Biden hafi staðið sig afar illa í forsetakappræðum við Donald Trump. Raunar er það vægt til orða tekið en margir hafa haft orð á því að það hafi verið hrein hryllingur að fylgjast með kappræðunum. Biden þótti hrumur, rámur og stóðst Trump engan veginn snúninginn. Meðal þeirra sem eru á þessu máli má telja Össur Skarphéðinsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, en hann segist oft hafa fengið kjánahroll við áhorfið í nótt.
„Ég horfði á kappræður þeirra Joe Biden og Donald Trump í nótt. Biden hefur sannarlega verið mjög afkastamikill og góður forseti, náð í gegn mörgum stórvirkjum á sviði lagasetninga, sem hafa þegar gjörbreytt stöðu orkuskipta. Efnahagsmálin eru á bullandi uppleið. Biden hefur einnig lagt lagalegan grunn og aflað fjármagns til að fara í verulega styrkingu innviða í Bandaríkjunum. En sérhver gestur þangað sér að þeir eru að grotna niður, hvort sem litið er til ástands flugvalla, hraðbrauta, lestakerfis og annarra samgöngumannvirkja. Honum, og demókrötum, er einnig þakkað að Bandaríkin eru nú mestu orkuframleiðendur heimsins og hafa losað þjóðina úr greipum OPEC ríkja, sem eru skelfingu lostin,“ segir Össur á Facebook.
Össur bendir á að andstæðingur Biden, Trump, sé dæmdur glæpamaður og frægur raðlygari. Hann virðist þó hafa komið betur út úr kappræðunum. „Frómt frá sagt virkaði Biden hræðilega í kappræðunum. Hann birtist sem mjög gamall og þreyttur, hreyfði sig einsog háaldraður maður – sem hann er auðvitað að verða – undir miklu álagi. Rödd hans var hás og aðþrengd, og maður átti stundum erfitt með að greina bæði hvað hann sagði, og samhengið í hinum töluðu orðum. Þegar hann var ekki í mynd meðan stjórnendur eða Trump höfðu orðið, hengdi hann hálfvegis haus, svipbrigðalaus með opinn hangandi munn einsog maður sér stundum hjá mjög gömlum mönnum á elliheimilum. Það fór oft um mig kjánahrollur undir umræðunum. Mér leið satt að segja hræðilega meðan á þeim stóð. Biden var augljóslega þyngdur af ellibelgnum, og gamli bardagamaðurinn, sem oft leiftraði, og var stundum örskjótur að hugsa, með „one-liners“ á hraðbergi, var hvergi sjáanlegur,“ segir Össur.
Hann segir Biden einnig hafa klúðrað kappræðunum sé horft til áherslna. „Mér fannst Biden klúðra í kappræðunum flestum helstu áherslumálum demókrata, einsog varðandi þungunarrof sem eitt og sér er málefni, sem demókratar gætu auðveldlega unnið kosningarnar á. Sama gilti um efnahagsmálin. „It is the economy, stupid!“ voru fræg orð Jimmy Carville, helsta strategista Bill Clinton, og átti við að staða efnahagsmála réði jafnan úrslitum um endurkjör forseta. En Biden hafði ekki rænu til að koma á framfæri að undir hans stjórn – og að mörgu leyti vegna ákvarðana hans – er bullandi uppgangur í efnahagslífinu. Varla bar á góma hans að engar líkur eru lengur á harðri lendingu eftir gríðarlegt verðbólguskot í kjölfar Covid, fremur en sú staðreynd að verðbólga í Bandaríkjunum er að hrapa einsog steinn, flestir finna atvinnu við hæfi, og laun hafa ekki lækkað að marki. Undir árásum Trumps vegna brottfarar Bandaríkjamanna frá Afghanistan hafði Biden ekki einu sinni rænu á að skjóta því inn að það var Trump sjálfur, sem tók ákvörðun um hana – og samdi sjálfur við Talebana,“ segir Össur.
Hann segir að ekki sé hægt að lýsa nóttinni öðru vísi en stórslysi, fyrir demókrata það er að segja. „Ekki bætir úr skák demókrata að eini stjórnmálamaðurinn sem naut meiri óvinsælda en Biden fyrir kappræðurnar er Kamala Harris, liðónýtur varaforseti. Menn hugsa með skelfingu til þess að hún þurfi e.t.v. að taka við keflinu af Biden áður en kjörtímabilinu sleppir. Í kjölfar kappræðnanna munu Repúblikanar leggja þunga áherslu á að vaxandi líkur séu á að Kamala verði forseti upp úr þurru, og það mun skaða stöðu Demókrata. Fyrir demókrata voru kappræðurnar stórslys, „disaster“ jafnvel. Hinn gamli refur David Axelrod, helsti strategisti Barack Obama, þegar Biden var varaforseti, lét hafa eftir sér að þeim loknumað nú hlytu demókratar að hugsa hratt um hvort og hvernig mætti skipta inn á nýju forsetaefni. Úr þessu gerist það ekki nema með samþykki Bidens sjálfs,“ segir Össur og bætir við að lokum:
„Gerist það hins vegar ekki hafa sigurlíkur Repúblikana með Trump í fararbroddi stóraukist með gærkvöldinu.“
Hér fyrir neðan má horfa kappræðurnar í heild sinni.