Þessi frétt í laugardagsblaði Moggans er enn eina umfjöllun blaðsins og mbl á þjóðaröryggisstefnu ríkisstjórnar Trump sem meðal annars boðar endalok siðmenningar í Evrópu ef þjóðernissinnaðir hægri flokkar ná ekki völdum. Og boðar að Bandaríkin muni draga sig úr Evrópu að miklu leyti, sem mun umbreyta Nató. Það var ekkert um þetta í blaði dagsins, á mánudegi. Leiðari dagsins fjallaði um ókurteisi forseta Alþingis, það var mikilvægasta málið í heimi Moggans. Morgunblaðið sker sig æ meir frá öðrum „stórum“ blöðum í okkar heimshluta hvað varðar fréttamat, afstöðu og umfjöllunarefni.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.