Ég skrifaði aðsenda grein sem var ekki birt. Ég fékk svar um að það ætti að birta hana í gær klukkan hálf tíu en það var ekki. Greinin er opið bréf til Elliða þar sem ég tala um staðreyndir og það að hann er og hefur verið árum saman í stöðu til að hafa áhrif og gera raunverulegar breytingar, sem að mínu mati hefur hann ekki gert. Þar sem ég vil að hann fái tækifæri til að lesa bréfið og ígrunda hans stöðu og afstöðu til innflytjenda og þá ábyrgð sem hann ber á að taka vel á móti innflytjendum og stuðla að inngildingu innan sveitarfélagsins sem honum er treyst fyrir að stjórna, bið ég ykkur um að aðstoða mig við að dreifa greininni hér. Vonandi kemst hann auga á það:
Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss
Kæri Elliði,
Þú skrifar að góðvild sé ekki stefna. Ég er sammála. En orð eru það ekki heldur, og allra síst orð bæjarstjóra sem deilir mynd af hópi karlmanna af erlendum uppruna undir háðskri yfirskrift um franska nemendur (mynd sem reyndist hvorki frá Frakklandi né af nemendum) og fullyrðir svo að óheftur straumur innflytjenda, „sérstaklega múslima“, valdi skaða. Þú hefur leiðrétt orð þín um trúna. Gott. Takk. En sem kjörinn fulltrúi tekur þú orð þín ekki til baka af skólalóðinni, kaffistofunni eða úr kommentakerfunum þar sem þau lentu. Ábyrgð á orðum hefst áður en þau eru sögð, ekki eftir að þau hafa verið leiðrétt.
Þú kallar eftir gögnum. Frábært. Þau eru til og þú þarft ekki að sækja þau til Danmerkur. Þau lýsa þversögn sem við sem störfum í málaflokknum höfum bent á árum saman:
• Atvinnuþátttaka innflytjenda á Íslandi er sú mesta í OECD, 89%, OG jafnvel satt að segja meiri en innfæddra.
• Samt telja aðeins 18% innflytjenda sig hafa góð tök á íslensku. Það er lægsta hlutfall í OECD, þar sem meðaltalið er 60%.
• Aðeins um 10% innflytjenda taka þátt í fullorðinsfræðslu, (þar sem íslenskan er kennt) á móti 20% á Norðurlöndunum.
• Opinber framlög til íslenskukennslu á hvern innflytjanda lækkuðu úr 7.417 kr. árið 2007 í 3.257 kr. árið 2023. Á sama tíma fjölgaði innflytjendum hlutfallslega meira hér en í nokkru öðru OECD-ríki.
• Börn fædd á Íslandi af erlendum foreldrum eru 52 stigum á eftir jafnöldrum sínum í lesskilningi í PISA. Það jafngildir nærri tveimur árum af skólagöngu.
• Í MIPEX-vísitölunni fær Ísland 56 stig af 100, stefna sem fer aðeins „hálfa leið“ að jöfnum tækifærum. Menntun er veikasti flokkurinn með 45 stig, og fyrir aðgerðir til að fjölga kennurum af erlendum uppruna fær Ísland núll.
Þetta er þversögnin í hnotskurn: við krefjumst íslensku sem skilyrðis fyrir þátttöku en styðjum hana ekki sem leið að þátttöku. Fólk kemur hingað, vinnur meira en flestir og greiðir skatta. Við spörum okkur að kenna því málið og undrumst svo að börnin standi höllum fæti. Það er ekki vandi „ákveðinna svæða“. Það er vandi stefnuleysis, þú hefur ýmis vald sjálfur til að móta stenfu á þessa sviði er það ekki? Og fyrst þú nefnir uppruna: fjórir af hverjum fimm innflytjendum hér koma frá EES-löndum.
Leikskólarnir sýna þetta vel. Yfir 21% starfsfólks þeirra er af erlendum uppruna, og án þess fólks væri mörgum leikskólum ekki haldið opnum. Samkvæmt OECD minnkar lestrarmunurinn niður í fjögur stig meðal barna sem byrja snemma í leikskóla, sem er minnsti munur í OECD. Þarna hefur þú, sem bæjarstjóri, raunverulegt vald.
Þú skrifar sjálfur að tungumálakennsla eigi að vera raunverulegt forgangsverkefni. Velkominn í hópinn. Því spyr ég þig, Elliði:
• Hefur þú tekið eitthvert þeirra skrefa sem lögð eru til í móttökuáætlun fyrir íbúa af erlendum uppruna?
• Styður þú við íslenskunám erlendra íbúa Ölfuss í nærsamfélaginu?
• Starfar fjölmenningarfulltrúi á þinni bæjarskrifstofu?
• Hefur þú beitt þér fyrir því að Ölfus setji sér inngildingarstefnu og málstefnu eins og lög nr. 61/2011 gera ráð fyrir?
Ég spyr af reynslu. Sem forstöðukona Fjölmenningarseturs stýrði ég gerð þessarar móttökuáætlunar í höfn rétt áður en stofnun var lagt niður. Hún var send öllum sveitarfélögum landsins og öllum var boðið á opinn kynningarfund með okkur. Bæjarstjórar mættu á fundinn, aðrir sendu okkur tölvupóst og sum sveitarfélög leituðu til okkar um stuðning við móttöku nýrra íbúa eða við gerð inngildingarstefnu. Okkur barst meira að segja bréf frá Guðna Th. Jóhannessyni, þáverandi forseta Íslands, þar sem hann þakkaði fyrir starf okkar og lýsti þeirri von að sveitarfélög um allt land nýttu tækifærin sem fælust í áætluninni og hjá Fjölmenningarsetri. Frá þér man ég ekki eftir að hafa heyrt, Elliði. Synd, þetta var gott tækifæri.
Síðan hefur Fjölmenningarsetur verið lagt niður og fært inn í litla deild hjá Vinnumálastofnun, sem heldur áfram að minnka á sama tíma og innflytjendum fjölgar. Ef þú leitar að stefnu sem „skilar ekki árangri“, þá er hún þarna. Hún er ekki innflytjendunum að kenna.
En tækifærin eru ekki útrunnin. Eftir að setrið var lagt niður hafa sveitarfélög áfram leitað til mín. Ég hef unnið með þeim að málstefnu í samræmi við lög og að inngildingarstefnu. Sú stefna snýst ekki bara um að innflytjendur aðlagist, heldur um að samfélagið taki raunverulega vel á móti þeim. Þú skrifar að aðlögun sé sameiginleg ábyrgð. Ég tek þig á orðinu.
Ef þú vilt í alvöru koma í veg fyrir að tölurnar sem þú óttast verði að veruleika í Ölfusi, þá er næsta skref ekki önnur Facebook-færsla. Það er að snúa við blaðinu og taka réttu skrefin sjálfur. Dyrnar mínar standa opnar.
Góðvild er ekki stefna. Fordómar eru það ekki heldur.
Virðingarfyllst, Nichole Leigh Mosty innflytjandi