„Við þurfum að ganga í Evrópusambandið og taka upp evruna. Fyrr linnir þessu ekki. Málið er á dagskrá,“ segir Illugi Jökulsson fjölmiðlamaður á Facebook og deilir færslu Gríms Atlasonar, framkvæmdastjóra Geðhjálpar og eiginmanns Helgu Völu Helgadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Færsla Gríms hefur farið víða í dag en þar gagnrýnir hann harðlega enn eina vaxtahækkun Seðlabankans. Margir hafa túlkað orð hans sem ákall um að Ísland verði að ganga í Evrópusambandið.
Grímur vekur athygli á því að stýrivextir á Íslandi séu nú 133 prósent hærri en þeir eru á evrusvæðinu og 237% hærri en í Danmörku, 194% hærri en í Finnlandi, 169% hærri en í Noregi og 150% hærri en í Svíþjóð. Hann skrifar svo:
„Núna er verið að kæla hagkerfið með handafli á sama tíma og tvær milljónir ferðamanna streyma hingað og mikil eftirspurn er eftir vinnuafli. Húsnæðismarkaðurinn er settur á ís hvar hann verður í tvö til fjögur ár en þá verður eftirspurnin orðin slík að allir byggingakranar jarðarinnar verða kallaðir til þjónustu og fasteignasalar hafa ekki lent í annarri eins törn. Vaxtakjör verða með hreinum ólíkindum og bankarnir lána eins og engin sé morgundagurinn. Tveimur árum síðar grípur Seðlabankinn í handbremsuna enda allt farið úr böndunum enn eina ferðina. Hefst þá aftur kalda tímabilið sem stendur í tvö til sex ár og eftir það kemur hitabylgjan sem varir í tvö til fjögur ár. Endurtekið endalaust.“´
Ákall um að evran verði á dagskrá á þó ekki upp á pallborði hjá Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar, en hún hefur dregið úr áherslu flokksins á aðild að Evrópusambandinu.
„Og þess vegna segi ég það hér: Samfylkingin mun ekki setja fulla aðild að Evrópusambandinu fram sem forgangsmál nema að undangengnu víðtæku samtali og uppfærðri yfirferð og rannsókn á kostum og göllum aðildar,“ sagði Kristrún á landsfundi flokksins í fyrra.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, hjólar í Kristrúnu í aðsendum pistli á Vísi og segir hana stefnu hennar hvað ESB varðar vera „sennilega heimskulegasta velferðarmál allra“. Þar sagði Sigmar meðal annars:
„Það verður skýrara með hverjum deginum að nýrri forystu Samfylkingar, og hluta þingflokksins, er slétt sama um Evrópumálin. Málið er ekki á dagskrá, rétt eins og hjá Framsókn og Sjálfstæðisflokki. Formaður flokksins sagði það skýrt um helgina og Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður flokksins, er enn afdráttarlausari í viðbrögðum sínum við grein sem ég skrifaði í gær. ESB er ekki á dagskrá. Samfylkingin er upptekin við annað.“