Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Helgi-spjall: Kristinn Hrafnsson

Helgi-spjall: Kristinn Hrafnssonarrow_forward

S04 E131 — 09/16/2023

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Kristinn Hrafnsson frá sjálfum sér, blaðamennskunni og þeim öflum öllum sem vinna gegn þeim sem vilja upplýsa og fela fyrir almenningi hvernig heimurinn er.

Vikuskammtur: Vika 37

Vikuskammtur: Vika 37arrow_forward

S04 E130 — 09/15/2023

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Hjördís Rut Sigurjónsdóttir upplýsingafulltrúi, Hrafn Jónsson pistlahöfundur, María Pétursdóttir formaður húsnæðishóps ÖBÍ og Þorvarður Bergmann Kjartansson stjórnarmaður í VR og ræða fréttir vikunnar sem markaðist af þingbyrjun, eldhúsdegi og fjárlagafrumvarpi en ekki síður kynfræðslu í skólum, löxum og hvölum.

Fákeppni, Framsókn og kalt stríð

Fákeppni, Framsókn og kalt stríðarrow_forward

S04 E129 —

Við höldum áfram að ræða samkeppni og skort á henni á Íslandi, hinn beyglaða markað. Nú kemur Þórólfur Matthíasson prófessor og segir okkur frá hlutverki ríkisvaldsins til að koma í veg fyrir fákeppni, bæði í sögunni og í dag. Við ræðum við Benedikt Sigurðarson um Framsóknarflokkinn, sem hann telur vera á villigötum. Og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor kemur við og ræðir heimsmálin, hvernig Úkraínustríðið er að breyta valdahlutföllum í heiminum.

Kjör, íslenska og geðheilbrigði

Kjör, íslenska og geðheilbrigðiarrow_forward

S04 E128 — 09/13/2023

Þórarinn Eyfjörð, formaður Sameykis, kemur að Rauða borðinu og fer yfir stöðuna. Stunda fyrirtækin samsæri gegn þjóðinni? Gætir ríkisstjórnin sérhagsmuna en ekki almennings? Er upplausn og ekkert samkomulag í sjónmáli? Aleksandra Leonardsdóttir starfsmaður Alþýðusambandsins kemur og ræðir um íslenskukennslu fyrir innflytjendur, íslensku sem þröskuld og jaðarsetningu innflytjenda. Þá kemur Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, og ræðir geðheilbrigðisstefnuna og skort á henni.

Auðvaldið, mótmæli, markaður og stríðni

Auðvaldið, mótmæli, markaður og stríðniarrow_forward

S04 E127 — 09/12/2023

Við ræðum við Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, um auðvaldið sem hefur við höfum séð berstrípað af samkeppniseftirlitinu síðustu daga. Við förum niður á Austurvöll og ræðum við mótmælendur, sem þar voru mættir af ýmsu tilefni vegna þingsetningar. Við höldum áfram að ræða um samkeppni eða skort á henni, nú við Ólaf Stehensen framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda og Margréti Kristmannsdóttur framkvæmdastjóra Pfaff. Í lokin ræðir Oddný Eir Ævarsdóttir við Birnu Bjarnadóttur og Friðrik Rafnsson um tvö látna rithöfunda, Milan Kundera og Guðberg Bergsson.

Fákeppni, flóttabörn, auðlindin og Chile 1973

Fákeppni, flóttabörn, auðlindin og Chile 1973arrow_forward

S04 E126 — 09/11/2023

Þær koma til okkar þingkonurnar Oddný Harðardóttir xS, Hanna Katrín Friðriksson xC og Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir xV og ræða um samkeppni, fákeppni og okur. Þá kemur Morgane Priet-Mahéo frá samtökunum Réttur barna á flótta og segir frá stöðu flóttabarna. Við heyrum í Kjartani Páli Sveinssyni formanni Strandveiðifélagsins um gagnrýni hans á Auðlindina okkar, nefndarstarf Svandísar Svavarsdóttur um kvótakerfið. Í lokin segir Valdimar Þór Hrafnkelsson frá valdaráni hersins í Chile árið 1973, en í dag eru fimmtíu ár frá voðaverknaði sem átti eftir að kosta þúsundir lífið og kljúfa þjóðina.

Helgi-spjall: Halli

Helgi-spjall: Halliarrow_forward

S02 E125 — 09/09/2023

Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Haraldur Þorleifsson frá sjálfum sér og þeim glímum sem hann hefur háð, átökunum innra með honum og áföllunum sem hann hefur orðið fyrir. Og auðvitað sigrunum líka.

Vikuskammtur: Vika 36

Vikuskammtur: Vika 36arrow_forward

S04 E124 — 09/08/2023

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Þór Fanndal framkvæmdastjóri Transparency International á Íslandi, Axel Jón Ellenarson kynningarfulltrúi Sameykis, Guðrún Margrét Guðmundsdóttir starfsmaður Alþýðusambandsins og Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur og ræða fréttir vikunnar sem markaðist af samráði, spillingu, mótmælum og því að bráðum kemur þing saman.

Spilling, samráð og samkeppni

Spilling, samráð og samkeppniarrow_forward

S04 E123 — 09/07/2023

Við ræðum mál málanna í kvöld, skort á samkeppni á Íslandi, samráð og samsæri, í tilefni af úttekt Samkeppnisstofnunar á Samskipum og Eimskip. Fyrst kemur Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, sem lengi hefur bent á spillingu í íslensku samfélagi og ekki síst þá spillingu sem lífeyrissjóðirnir styðja innan fyrirtækjanna, ræðir m.a. hlut lífeyrissjóða í málinu. Síðan kemur Gylfi Magnússon prófessor og ræðir fákeppnismarkaði, skaðann af þeim og hvaða tæki stjórnvöld hafi til að koma í veg fyrir samráð og samkeppnisbresti.

Synir Egils og frelsi einstaklingsins

Synir Egils og frelsi einstaklingsinsarrow_forward

S04 E122 — 09/06/2023

Sigurjón Magnús Egilsson kemur að Rauða borðinu og ræðir við bróður sinn, Gunnar Smára, um hvort þeir eigi að byrja með þátt á Samstöðinni á sunnudaginn. Og hvort sá þáttur eigi að kallast Synir Egils. Þegar hann fer koma þingkonurnar Diljá Mist Einarsdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir og ræða um einstaklingsfrelsi og mikilvægi þessi í pólitíkinni.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí