Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Hvalir, hælisleitendur og samkeppnishömlurarrow_forward
Við ræðum um þrjú deilumál við Rauða borðið í kvöld. Fyrstur kemur Benedikt Erlingsson leikstjóri, sem eitt sinn hlekkjaði sig við hvalabát, og ræðir við okkur um hvalveiðar og hvalveiðibann. Síðan heyrum við í Helen Ólafsdóttur, öryggisfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum, sem gagnrýnt hefur fyrirhugaðar flóttamannabúðir, sem stjórnvöld vilja kalla búsetuúrræði með takmörkunum. Og loks kemur Haukur Logi Karlsson lektor á Bifröst og doktor í samkeppnisrétti, og segir okkur frá úrræðum almannavaldsins til að koma í veg fyrir verðsamráð og fákeppni.
Fákeppni, okur og Samfylkinginarrow_forward
Sektir sem Samkeppniseftirlitið lagði á Samskip hafa dregið fram skaðsemi fákeppni á Íslandi. Við fáum þá Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna, Stefán Sveinbjörnsson framkvæmdastjóri VR og Ásgeir Brynjar Torfason sérfræðingur í fjármálum til að ræða skort á samkeppni á Íslandi, okur og fákeppni. Og hvað er til ráða? Kristrún Frostadóttir kemur svo að Rauða borðinu og ræðir stjórnmálaástandið, ríkisstjórnina, Samfylkinguna og hvað sá flokkur stendur fyrir.
Helgi-spjall: Hlín Agnarsarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Hlín Agnarsdóttir frá sjálfri sér, fjölskyldu, uppvexti, kynslóð og baráttu, en líka frá körlum sem hún hefur mikinn áhuga á.
Vikuskammtur: Vika 35arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Margrét Erla Maack burlesque-drottning, Ester Bíbí Ásgeirsdóttir bassaleikari, Rósa María Hjörvar bókmenntafræðingur og Þór Saari hagfræðingur og þýðandi og ræða fréttir vikunnar sem markaðist af hvölum og pólitískum hræringum, gróða hinna ríku og lífskjarakreppu hinna fátækari.
Innflytjendur, íslenskan og pólitíkinarrow_forward
Hallfríður Þórarinsdóttir kemur að Rauða borðinu og ræðir um erlent verkafólk á Íslandi, hvernig það er misnotað og haldið niðri. Eiríkur Rögnvaldsson lítur við og ræðir um íslenskuna, hvernig hún veikist og velkist í breyttum heimi. Í lokin verður ný liður, Synir Egils. Bræðurnir og blaðamennirnir Sigurjón Magnús og Gunnar Smári Egilssynir taka stöðuna á pólitíkinni.
Efnahagur, flóttafólk og fullveldiarrow_forward
Ásgeir Brynjar Torfason kemur til okkar og reynir að ráða í hvaða efnahagsstefnu er verið að reka á Íslandi. Ingvi Kristinn Skjaldarson kapteinn í Hjálpræðishernum kemur og segir frá flóttafólkinu sem ríkið henti út á götu og reynir að ráða í þá flóttamannastefnu sem verið er að reka hér. Og Arnar Þór Jónsson segir okkur frá flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins og reynir að ráða í um hvað hin svokallaða sjálfstæðisstefna snýst. Og hvort honum sé vært í flokknum.
Vinstri áskoranir, réttleysi verkafólk og BRICSarrow_forward
Við fáum Ögmund Jónasson til að segja okkur frá áskorunum vinstrisins á vorum tíma. Og ræða það sem hann og vinstri menn eiga sameiginlegt með þeim hægri mönnum sem helst gagnrýna þróun samfélagsins í dag. Saga Kjartansdóttir vinnur við vinnustaðaeftirlit og segir okkur frá hvernig brotið er gegn starfsfólki í ört vaxandi ferðaþjónustu. Sem margir vara við að vaxi of hratt með slæmum afleiðingum. Þá kemur Valur Ingimundarson prófessor að Rauða borðinu og ræðir BRICS, samtakanna sem héldu ársfund í liðinni viku. Hvert þróast BRICS og hvers vegna er fjallað um fund þeirra af fálæti á Vesturlöndum.
Efnahagur, spilling og pólitíkarrow_forward
Þorvaldur Gylfason kemur að Rauða borðinu og ræðir um stöðu efnahagsmála en ekki síður spillingu. Kannski gengur ekki lengur að ræða efnahagsmálin án þess að taka spillinguna með í reikninginn. Ólafur Þ. Harðarson kemur síðan og ræðir um stjórnmál liðinni áratuga út frá hægri og vinstri, til dæmis snöggri hægri beygju VG á síðustu árum. Hægri og vinstri er ekki dautt, tilgangslaust að ræða stjórnmálin án þess að taka mið af þessum hugtökum.
Helgi-spjall: Sema Erlaarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Sema Erla Serdaroglu frá sjálfri sér, hvernig samfélagið tók við henni og hvernig hún hefur glímt við rasisma og útlendingaandúð, gæði því sem beinist að henni og bjargarlausu fólki.
Vikuskammtur: Vika 34arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Birgir Örn Guðjónsson lögreglumaður, Jóna Fanney Friðriksdóttir formaður Félags leigsögumanna, Magga Stína tónlistarkona og Teitur Atlason starfsmaður HMS og ræða fréttir vikunnar sem litaðar eru af vaxtahækkunum og hælisleitendum, efnahagslegum og siðferðislegum álitamálum.