Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Skúringar, íslenskt flóttafólk, dauðinn og Útvarp Rótarrow_forward
Við ræðum við Kristínu Hebu Gísladóttur forstöðukonu Vörðu, rannsóknaseturs verkalýðsins, um stöðu ræstingarfólks. Sláum síðan á þráðinn til efnahagslegra flóttamanna frá Íslandi, fólks sem hefur flutt frá Íslandi til Norðurlandanna í leit að betra lífi: Þóra Dis Guðbjartsdóttir Odsgaard, Fríður Pétursdóttir, Haraldur Anton Árnason, Arnar Guðmundsson, Guðfinna Bjarnadóttir, Páll Birgis Pálsson og Gyða Björk Ágústsdóttir segja okkur frá lífinu á Íslandi og lífinu á hinum Norðurlöndunum. Björn Þorláksson blaðamaður hefur skrifað bók um dauðann og segir okkur frá kynnum sínum og annarra af honum. Í lokin rifja þau Soffía Sigurðardóttir, Jón Helgi Þórarinsson og Ragnar Stefánsson upp ris og fall Útvarps Rótar, alþýðuútvarps sem hér var rekið seint á níunda áratugnum.
Orkuþörf, Icel, mæðrun, Pólland, sósíalismiarrow_forward
Þarf að virkja tvöfalt meira til að mæta orkuskiptum og bjarga loftslaginu? Eða eigum við að neyta minna og fara betur með þá orku sem til er. Andri Snær Magnason skáld og rithöfundur og Sigríður Mogensen siðstjóri hjá Samtökum iðnaðarins koma að rauða borðinu og skiptast á skoðunum. Bjarki Þór Grönfeldt Gunnarsson stjórnmálasálfræðingur fræðir okkur um menningarfyrirbrigðið Incel og þær Annadís Greta Rúdólfsdóttir dósent ó aðferðarfræði rannsókna og Auður Magndís Auðardóttir lektor í uppeldis- og menntunarfræðum segja okkur frá ákafri mæðrun. Við hringjum í Jacek Godek stórþýðanda og fáum hann til að fræða okkur um pólsku kosningar og hvað er í húsi. Í lokin kemur Björn Þorsteinsson prófessor og ræðir sósíalisma.
Strætó, sauðfé, SÁÁ og sósíalismiarrow_forward
Þær María Pétursdóttir og Oddný Eir Ævarsdóttir heimsækja strætóstoppistöðina í Mjóddinni og flytja okkur mannlífstúdíu þaðan. Við heyrum í Karólínu Elísabetardóttur sauðfjárbónda í Hvammshlíð, sem var hvatakona að leit að erfðaefnum sem geta varið fé fyrir riðu. Hún segir okkur þá sögu en líka frá ullinni og hvernig rétt ræktun og meðferð sauðfjár getur aukið verðmæti hennar. Þá heyrum við í þeim Ingunni Hansdóttur framkvæmdastjóri sálfélagslegra meðferðar og Önnu Hildi Guðmundsdóttur formanni SÁÁ um stöðu áfengismeðferðar, áfengis- og vímuefnaneyslu og versnandi fjárhag samtakanna. Í lokin höldum við áfram að kortleggja sósíalismans í tilefni af erindi Jeremy Corbyn um helgina. Árni Daníel Júlíusson sagnfræðingur segir sína sósíalísku sögu og greinir stöðu sósíalismans í dag.
Kvótinn, Sameinuðu þjóðirnar, Kamban og sósíalismiarrow_forward
Helgi Hlynur Ásgrímsson útvegsbóndi sest við rauða borðið og ræður sjávarútvegsstefnuna, kvótann og óréttlætið sem honum fylgir. Og metur hvort líkur séu á að Svandís Svavarsdóttir nái fram einhverjum breytingum á stefnunni. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er í New York. Helen Ólafsdóttir hlustaði á ávörp þjóðarleiðtoga og greinir fyrir okkur þræðina í þeim ræðum. Banamaður Guðmundar Kambans hefur verið nefndur. Við fáum Jón Yngva Jóhannsson bókmenntafræðing til að segja okkur frá Kamban og öðrum höfundum sem tengdust þýskum yfirvöldum á nasistatímanum. Í lokin kemur Einar Ólafsson skáld og bókavörður og ræðir sósíalismann, sögu hans og sína reynslu. Og metur hvort þörf sé á sósíalisma.
Aukaþáttur: Hvers vegna þörf er á sósíalismaarrow_forward
Aukaþáttur af Rauða borðinu í tilefni af fundi Jeremy Corbyn í Þjóðmenningarhúsinu undir yfirskriftinni: Hvers vegna þörf er á sósíalisma. Við fáum fólk sem var á fyrirlestrinum til að koma við og leggja út frá erindi Corbyn: Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Sólveig Anna Jónsdóttir, Ögmundur Jónasson, SOddný Eir Ævarsdóttir, Sanna Magdalena Mörtudóttir, Helga Vala Helgadóttir, Pontus Järvstad, Sara Stef Hildar, Karl Héðinn Kristjánsson, Jökull Sólberg Auðunsson, Elísabet Guðrúnar- og Jónsdóttir og Trausti Breiðfjörð Magnússon.
Helgi-spjall: Guðrún Eva Mínervudóttirarrow_forward
Í Helgi-spjalli við Rauða borðið segir Guðrún Eva Mínervudóttir frá sjálfri sér, sínu fólki, listinni og ástinni, en líka kynslóðavilltu fólki, viðkvæmum blómum í köldum heimi, voninni og mikilvægi þess að ganga mót lífinu með opið hjarta.
Vikuskammtur: Vika 38arrow_forward
Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Freyr Eyjólfsson upplýsingafulltrúi, Ingibjörg Magnadóttir myndlistarkona, María Hjálmtýsdóttir kynjafræðikennari og Stefán Pálsson sagnfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndist af menningarstríði og allskyns deilum.
Fjármálastöðugleika, Seyðisfjörður, SÁÁ og umbreytingarmátturarrow_forward
Við fáum Ásgeir Brynjar Torfason til að útskýra fyrir okkar hvaða fjármálastöðugleika Seðlabankinn er að innleiða og tala um. Við förum með Rauða borðið og ræðum um bæinn, öryggi, störf, laxa, göng og heilbrigðiskerfi við Hildi Þórisdóttur, Þóru Bergnýju Guðmundsdóttur, Snorra Emilsson og Benediktu Guðrúnu Svavarsdóttur. Sigmar Guðmundsson fór á Vog í sumar og upplifði afleiðingar af lokun SÁÁ á þjónustu yfir sumarið. Hann skilur ekki hvers vegna stjórnvöld efla ekki meðferðina. Oddný Eir Ævarsdóttir ræðir í lokin við Björgu Árnadóttur, rithöfund, blaðamann og kennara um umbreytingarmátt samfélagslista.
Helvítis kvótinn, húsnæðiskreppan og kirkjanarrow_forward
Við höldum áfram að ræða kvótann og sjávarútvegsstefnuna, nú við manninn af götunni. Atli Hermansson hafnarvörður hefur starfað við sjó án þess að vera sjómaður og hefur margskonar reynslu af kvótakerfinu og séð spillinguna í kringum það. Ólafur Margeirsson hagfræðingur heldur úti rannsóknum á húsnæðismarkaðnum og bendir á veikleika hans. Við ræðum við hann um íbúðaþörfina og íbúðaskortinn. Þegar ríkisvaldið hendir fólki á götuna án bjarga særir það siðferðiskennd margra. Við spyrjum Hjalta Hugason guðfræðiprófessor hvað Jesús myndi gera og hvort kirkjan eigi að bregðast eins við. Og líka um hvers konar biskup kirkjan þarf á að halda.
Kvóti, hjólabúa, þari og Samtökin ’78arrow_forward
Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra var hjá Sonum Egils í gær að ræða breytingar á sjávarútvegsstefnunni. Við fáum á Kjartan Sveinsson formann Strandveiðifélasins, Arthúr Bogason, formann Landssambands smábátaeigenda og Arnar Atlason formann Samtaka fiskframleiðenda til að leggja mat á erindi ráðherrans og líkurnar á að einhverjar breytingar verði gerðar. Það er stríð í Reykjavík, milli borgaryfirvalda og fólks sem býr í hjólhýsum og húsbílum. Við ræðum við annan stríðsaðilann, hjólabúanna Bergþóru Pálsdóttur og Geirdísi Hönnu Kristjánsdóttur. Oddný Eir ræðir síðan við Guðrúnu Hallgrímsdóttur um þara og hvað hann getur gert fyrir okkur. Og í lokin kemur Hörður Torfason og segir okkur frá aðdragandanum að stofnun Samtökunum ’78.