Lífeyrissjóðir eiga að fjárfesta í húsnæðisuppbyggingu

Húsnæðismál 27. sep 2022

Ólafur Margeirsson, doktor í hagfræði, segir að íslenskir lífeyrissjóðir eigi að fjárfesta í húsnæðisuppbyggingu verkalýðsfélaganna með tilkomu íbúðafélagsins Blæs.

Ólafur segir í grein í Tímariti Sameykis að það hafi verið mikið framfaraskref fyrir heilbrigðan og þjóðhagslega hagkvæman leigu- og fasteignamarkað þegar Blær íbúðafélag var stofnað. Það bætist við Bjarg íbúðafélag sem er húsnæðissjálfseignarstofnun rekin af ASÍ og BSRB. Bjarg íbúðafélag er rekið án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja tekjulágum fjölskyldum á vinnumarkaði aðgengi að öruggu íbúðarhúsnæði í langtímaleigu.

„Blær er næsta þrep fyrir ofan Bjarg þegar kemur að hagnaðarsjónarmiðum á leigumarkaði: Á meðan Bjarg er rekið án hagnaðarsjónarmiða er ætlunin með Blæ að reka það sem lághagnaðarfélag.“

Þá segir hann að stóraukið magn af íbúðum til leigu, jafnvel þó þær íbúðir séu ekki sérstaklega leigðar til hinna fátækustu, heldur leigu- og fasteignaverði niðri sem aftur hjálpar þeim helst sem eru með lægstu tekjurnar í viðkomandi samfélagi.

„Minni þrýstingur verður í kjölfarið á launakröfur því laun þurfa nú að hækka um færri prósentur á ári til þess að skila sömu raunlaunahækkuninni að teknu tilliti til húsnæðiskostnaðar. Verðbólguþrýstingur lækkar einnig, sem aftur leiðir til lægra vaxtastigs. […] Fjárfestarnir sjálfir, þ.e. lífeyrissjóðir og sjóðfélagar þeirra, hagnast að sama skapi líka því fasteignir skila öruggum leigutekjum og ávöxtun. Áhættuleiðrétt ávöxtun sjóðfélaga lífeyrissjóðanna batnar.“

Lesa má grein Ólafs hér: Stærri leigumarkaður hjálpar tekjulágum.

Hér má hlýða á Ólaf skýra hugmyndir sínar á Rauða borðinu:

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí