Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hlífir hátekjufólki

Stjórnmál 17. okt 2022

„Það er augljóst hver stefna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttir er. Hún felst í að auka álögur á láglauna- og millitekjuhópana í samfélaginu og láta þá bera byrðarnar en hlífa hálaunafólki, sem greiðir hlutfallslega lægri skatta vegna fjármagnstekna,“ segir Þórarinn Eyfjörð formaður Sameykis.

Þórarinn segir efnahagsmálin vera í ólestri hjá ríkisstjórninni í grein sinni, Hvernig eyðileggja skal samfélag, á vef Kjarnans. Hann segir að stefna ríkisstjórnarinnar felist í að auka álögur á láglauna- og millitekjuhópa en hlífa hálaunafólki við að bera byrðarnar í samfélaginu.

„Rúmlega 38 þúsund heimili eiga erfitt með að ná endum saman og 52 prósent af þeim hópi eru einstæðir foreldrar. Það blasir við að sá hópur sem nær ekki endum saman fer vaxandi þar sem kaupmáttarrýrnun er 4 prósent á þessu ári á meðan verðbólgan mældist 9,3 prósent á ársgrundvelli nú í september,“ skrifar Þórarinn.

Þá segir Þórarinn að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur velur að nýta ekki þá tekjustofna sem blasa við til að skapa betra samfélag.

„Hún velur að styrkja ekki innviðina og almannaþjónustuna með því að nýta sjálfsagða tekjumöguleika ríkisins innan fjárlaganna. Tekjumöguleika eins og hátekjuskatt, bankaskatt, hvalrekaskatt og hækkun fjármagnstekjuskatts – svo ekki sé talað um sanngjarnari skattlagningu fyrir afnot af sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar.“

Lesa má grein Þórarins Eyfjörð hér: Hvernig eyðileggja skal samfélag.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu. Þú getur skráð þig hér: Skráning félaga

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí