Sameyki krefst þess að auðlindagjald verði innheimt

Auðlindir 30. mar 2023

Samþykkt var á aðalfundi Sameykis að krefjast þess að ríkisstjórnin innheimti sanngjarnt gjald fyrir afnot af auðlindum þjóðarinnar fyrir ríkissjóð Íslands. Fundurinn gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir það aðgerðaleysi sem hún sýnir í málefnum auðlinda þjóðarinnar. Í ljósi þess hvernig ríkisstjórnin hampar þeim sem nýta þjóðarauðlindir til eigin nota ætti hún að vinna að því að fá svo til allan arðinn til sín, segir í ályktuninni.

Í ályktuninni segir að auðlindaarðurinn er aðeins 2–3% prósent af landsframleiðslunni. „Ríkisstjórnin verður að snúa við stefnu sinni í að einkavæða arðinn af auðlindum í eigu þjóðarinnar og krefjast tekna til uppbyggingar innviða landsins,“ segir þar. „Umframhagnaður þeirra aðila sem nýta sér auðlindir þjóðarinnar skilar sér ekki í skattgreiðslum í ríkissjóð. Stjórnvöld þurfa nú þegar að beita sér í innheimtu þessara skatta og beita sér strax fyrir því að gera opinbert mat á verðmætum auðlindanna sem ríkisstjórnin hefur beitt sér gegn að láta framkvæma og hlíft þeim sem njóta arðsins í ræðu og riti.

Auðlindarentan í fiskveiðum og stóriðju sveiflast með verði á afurðunum. Þegar heimsmarkaðsverð á fiski og áli er hátt, eins og raunin er nú um stundir, verður auðlindaarðurinn gríðarlegur. Stóriðjan greiðir ekkert auðlindagjald og heldur ekki fiskeldið sem nýtir haf og firði til að rækta fisk. Í þeim löndum sem stjórnmálamönnum þykir gott að bera sig saman við á tillidögum er auðlindagjald eða skattur innheimtur af fiskeldi, til að mynda í Noregi, en það er ekki gert hér á landi. Stjórnvöld hafa þá stefnu að afhenda auðmönnum auðlindir þjóðarinnar. Sú aðferðafræði að þiggja brauðmolana er óþolandi fyrir þjóð sem kennir sig við velferð og samfélagslega ábyrgð.“

Myndin er af aðalfundi Sameykis.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí