Öfgar fordæma afsökunarbeiðni Menntaskólans á Akureyri

Kynbundið ofbeldi 25. maí 2023

Öfgar fordæma afsökunarbeiðni Menntaskólans á Akureyri til fyrrum nemenda skólans, en nafn hans var ritað á spegil í MH snemma vetrar, ásamt öðrum sem sakaðir voru um að vera gerendur í kynbundnu ofbeldi. „Við fordæmum þessi vinnubrögð ráðgjafahópsins og við fordæmum fyrri fjölmiðlaumfjöllun. Við förum fram á að ráðgjafahópurinn og Menntaskólinn á Akureyri axli ábyrgð á þeim skaða sem þau hafa valdið og biðjist afsökunar á þessu framferði,“ segir í yfirlýsingu Öfga.

Öfgar segja Menntaskólann á Akureyri hafa með athæfi sínu skrifaði sig í sögubækurnar fyrir ömurlegt bakslag fyrir alla unga þolendur. „Til að bæta gráu ofan á svart fór Ráðgjafahópur Mennta- og Barnamálaráðuneytisins með vald til að dæma mál sem hafði þegar farið sinn farveg í kerfinu, sekt geranda hafði verið sönnuð!“ skrifa félagar í Öfgum í yfirlýsinguna, en þar er því haldið fram að umræddur drengur hafi játað brot sín og fengið fyrir þau dóm.

Efnisatriði málsins eru rakin í yfirlýsingu Öfga, sem er svohljóðandi:

Þann 11. maí síðastliðin gaf Menntaskólinn á Akureyri út yfirlýsingu og bað þar geranda afsökunar á að hafa trúað því sem þau kalla „sögusögn.’’

Sögusögnin sneri að kynferðisbroti nemanda sem stundaði nám við Menntaskólann á Akureyri.

Umræddur gerandi var hins vegar kærður eftir að málið fór á borð barnaverndar. Barnavernd kærði kynferðisbrotin til lögreglu.

Niðurstöður úr því máli eru afgerandi þar sem gerandi játaði brot sitt en sökum ungs aldurs var málið ekki ákært en hann var vissulega á skilorði í tvö ár eftir að niðurstaða komst í málið.

Sú ákvörðun skólameistara Menntaskólans á Akureyri virðist hafa verið tekin á grundvelli þess að ráðgjafahópur á vegum Mennta- og Barnamálaráðuneytisins komst að þeirri niðurstöðu að enginn fótur lægi fyrir umræddum sögusögnum.

En ekki er allt sem sýnist:

  • Ráðgjafahópurinn talaði ekki við þolanda umrædds geranda.
  • Ráðgjafahópurinn hafði ekki samskipti við barnavernd.
  • Ráðgjafahópurinn skipaði réttarsálfræðing, starfsmann á vegum Ríkislögreglustjóra sem og skólasálfræðing Menntaskólans við Hamrahlíð.

Við teljum nauðsynlegt að leiðrétta að ekki var um nauðgun að ræða heldur annars konar kynferðisbrot, kynferðisbrot gegn 13 ára barni. Í fullkomnum heimi þurfa börn og ungmenni ekki að þekkja muninn á nauðgun og annars konar kynferðisbrotum en því miður búum við ekki í þeim heimi. Ungmennin fengu í hendurnar myndband sem sýndi geranda beita þolanda kynferðisofbeldi og drógu ranga ályktun út af því, þau þekktu ekki muninn á nauðgun og kynferðisbroti.

Það var svo í menntaskóla byltingunni sem þetta tiltekna mál fór í hámæli. Aðkoma þolanda var aftur á móti engin enda ekki nemandi við Menntaskólann við Hamrahlíð.

Þegar Öfgar athuguðu málið enn frekar kom í ljós að ástæða þess að nafn geranda endaði á speglinum var að fleiri þolendur en þessi eina stelpa höfðu tjáð sig um meint brot. Einungis eitt mál hafði farið sína leið í kerfinu og af öllum líkindum þótti það sterkasta leiðin til að vekja athygli á því að gerandi væri í skólanum án þess að þolandi í málinu sem hér um ræðir hafi fengið val.

En eftir situr skaðinn, fjölmiðlar hlupu af stað með meiðandi og ranga umfjöllun og tóku með því allt frásagnarvald af barni. Fullorðið fólk hóf að ausa hatri yfir barn undir öllum fréttum sem voru kolrangar.

Menntaskólinn á Akureyri bað geranda afsökunar og með því athæfi skrifaði sig í sögubækurnar fyrir ömurlegt bakslag fyrir alla unga þolendur. Til að bæta gráu ofan á svart fór Ráðgjafahópur Mennta- og Barnamálaráðuneytisins með vald til að dæma mál sem hafði þegar farið sinn farveg í kerfinu, sekt geranda hafði verið sönnuð!

Öfgar fordæma afsökunarbeiðni Menntaskólans á Akureyri, við fordæmum þessi vinnubrögð ráðgjafahópsins og við fordæmum fyrri fjölmiðlaumfjöllun. Við förum fram á að ráðgjafahópurinn og Menntaskólinn á Akureyri axli ábyrgð á þeim skaða sem þau hafa valdið og biðjist afsökunar á þessu framferði. Við förum fram á að fjölmiðlar hætti að birta falsfréttir um þetta mál og sýni börnum sem hafa orðið fyrir ofbeldi meiri virðingu en gjörðir þeirra sýna.

Að lokum fordæmum við getuleysi kerfisins til að styðja geranda til ábyrgðar. Það hefði verið hægt að koma í veg fyrir að meint brot væru fleiri hefði kerfið sinnt eftirliti með ungum manni sem játaði að hafa framið kynferðisbrot.

Vegna viðkvæmrar stöðu þolanda hefur fjölskyldan ákveðið að tjá sig ekki í fjölmiðlum og kosið að málið hefði ekki verið til umfjöllunar yfirhöfuð. Greinahöfundar fengu samþykki til að varpa ljósi á vitneskju sína um málið eftir að heimildarmanneskja tengd málinu setti sig í samband við samtökin.

Við biðjum fólk um að leyfa fjölskyldunni að græða sár sín í ró og næði.

Myndin er af félögum í Öfgum.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí