Verð á mjólkurvöru og brauð- og kornvöru hækkar oftast

Dýrtíðin 27. maí 2023

Þann 9. maí kannaði verðlagseftirlit ASÍ verð á sömu matvörum og kannaðar voru 29. mars í fyrra, 13 mánuðum fyrr. Á þeim tíma hefur almennt verðlag hækkað um rúm 11% og matvælaverð um tæp 14%. Af 739 verðmælingum hefur verð staðið í stað eða lækkað í 144 tilfellum en hækkað í 602 tilfellum – fjórfalt fleiri tilfellum. 

Verð hækkaði oftast á mjólkurvöru eða á sjö vörum fyrir hverja vöru sem það hækkaði ekki. Í flokki brauð- og kornmetis og hækkaði verð á sex vörum fyrir hverja vöru sem ekki hækkaði í verði. Mjólkurvara og brauð- og kornvara voru einnig meðal flokka þar sem verð hækkaði hvað mest eða um 13,9% og 14,5% að meðaltali. Verð á grænmeti og ávöxtum hækkaði mest milli mælinga eða um 25% að meðaltali en hafa ber í huga að mestar verðsveiflur eru í þessum vöruflokki og að ódýrasta kílóverð er tekið hverju sinni og úrval á hverjum tíma getur haft áhrif. Verðbreytingar í einstaka vöruflokkum í könnuninni endurspegla ekki endilega almennar verðlagshækkanir á matvöru þar sem vægi matvöruflokka í könnuninni er ekki metið líkt og í vísitölu neysluverðs auk þess sem fáar vörur eru undir í sumum vöruflokkum.

Verð hækkaði einnig mikið í flokkunum sælgæti og snakk (17,3%) og te, kaffi og kakó (16,4%). Mjög fáar vörur voru þó mældar í þessum flokkum á meðan mun fleiri vörur voru undir í flokki mjólkurvara og brauð- og kornvöru sem gefur betri mynd. Kjöt- og fiskvara hækkaði að meðaltali um 11,5% milli mælinga og hækkuðu þrjár vörur í verði fyrir hverja eina sem hækkaði ekki í verði.  

Í flokknum dósamatur og þurrvörur hækkaði verð á aðeins tveimur vörum fyrir hverja sem ekki hækkaði og nam meðalhækkunin í flokknum 10,1%. Drykkjarvörur hækkuðu minnst í verði milli mælinga (að meðaltali 7,2%) þó að verð hafi hækkað hvað oftast í þeim flokki eða á sex vörum fyrir hverja eina sem hækkaði ekki í verði.

Hlutfallslega fæstar vörur hækka í verði í Kjörbúðinni, Iceland og Fjarðarkaupum 

Þær verslanir sem höfðu hækkað verð á hlutfallslega fæstum vörum voru Kjörbúðin í Sandgerði, Iceland og Fjarðarkaup – 1,4 til 2,3 hækkanir fyrir hverja vöru sem ekki hækkaði. Í öðrum verslunum var hlutfallið 7 til 11. 

Sem dæmi um verðhækkanir á einstaka vörum má nefna verð á einum lítra af Nýmjólk sem hækkar á bilinu 15-22% milli ára og verð á Smjörva sem hækkar um 10-27%. Verð á heimilisbrauði hækkar um 11-30% og verð á Homeblest kexi um 15-59%. Verð á Heinz bökuðum baunum hækkar einnig mikið í flestum verslunum eða á bilinu 8-47% en 22% eða meira í öllum verslunum nema einni. Merrild kaffi hækkar um 17-45% en um 37% eða meira í öllum verslunum nema einni. Java Mokka kaffi frá Te og kaffi hækkar hins vegar töluvert minna í verði í flestum verslunum (4-29%) og lækkar í verði í tveimur verslunum (um 9-14%). Þá hækkar Nan pro barnamjólk í fernu um 14-20% en Hipp þurrmjólk mun minna eða á bilinu 0-14% í öllum verslunum nema einni þar sem hún hækkar um 51%. 

Hafa ber í huga að ekki voru allar vörur til í báðum verðmælingum hjá öllum verslunum og eru því mismargar samanburðarmælingar hjá verslununum. Þá voru fáar vörur í sumum flokkum og því er ekki hægt að draga ályktanir um almennar verðlagshækkanir út frá þeim. Hér að neðan má sjá hvernig verð í einstaka matvöruflokkum hefur hækkað í vísitölu neysluverðs á tímabilinu sem verðmælingarnar ná til. 

Frétt af vef Alþýðusambandsins.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí