Segir að verið sé að fita fyrirtæki í fákeppnisstöðu

Húsnæðismál 2. jún 2023

„Þetta er stóri vandinn fram undan. Hann verður aðeins leystur með fjölþættum aðgerðum á framboðs- og eftirspurnarhlið og með mótun atvinnustefnu. Skattalegar ívilnanir sem eingöngu fita fyrirtæki í fákeppnisstöðu munu duga skammt þó svo þær geti verið hluti af lausninni við ákveðin skilyrði,“ skrifar Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM á vef bandalagsins. Hann gagnrýnir að byggingariðnaðinum sé gefnar stórfelldar niðurfellingar á virðisaukaskatti á sama tíma og hagnaður af byggingarstarfsemi eykst stórum.

Grein Vilhjálms er svar við andmælum Samtaka Iðnaðarins að undanförnu við málflutningi hans. Þar er spjótunum helst beint að lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts til byggingaraðila í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, sem Vilhjálmur hefur gagnrýnt. „Þessi vegferð verður að teljast eðlilegt viðbragð af hálfu SI enda töluverðir fjárhagslegir hagsmunir í húfi,“ skrifar Vilhjálmur. „Námu endurgreiðslur til byggingaraðila ásamt COVID-útvíkkunum t.a.m. alls um 70 milljörðum króna á árunum 2015-2021. Sitt sýnist þó hverjum um aðferðafræðina. Samtökin hafa dregið trúverðugleika BHM og fjármálaráðuneytisins í efa opinberlega og sagt að lækkun endurgreiðslna verði að fullu velt út í verðlag húsnæðis. BHM, fjármálaráðuneytið og Seðlabankinn eiga það nefnilega sameiginlegt að hafa fjallað um mikla framlegð í byggingariðnaði undanfarið. Greining sem SI telur ranga eins og kom fram í Viðskiptablaðinu síðustu helgi undir yfirskriftinni „Fjármálaráðuneytið falli í sömu gildru og BHM“. Þessari fullyrðingu hafnar BHM alfarið.“

Framlegð af sölu húsnæðis með hæsta móti nú um stundir

Og Vilhjálmur heldur áfram: „Í umsögn BHMí greiningu BHMí riti fjármálastöðugleikanefndar og í grein fjármálaráðherra í Morgunblaðinu er fjallað um framlegð af sölu nýbygginga með samanburði verðvísitalna og byggingavísitölu. Ályktun allra aðila er á sömu leið. Framlegð af sölu nýbygginga og arðsemi hefur verið með hæsta móti í sögulegu tilliti. SI hafa hins vegar réttilega bent á að skekkja er í mælingu verðþátta í byggingarvísitölunni og því sé óvissa í matinu. Raunar kveða samtökin fastar að orði en svo og segja ályktanir BHM, fjármálaráðuneytis og Seðlabankans rangar og ómarktæktar fyrir vikið. Verður það að teljast afar ólíklegt enda er skekkja í mælingu byggingarvísitölunnar nokkuð samkvæm yfir tíma. Ályktunin um mikla arðsemi í sögulegu tilliti og breytingu í arðsemi milli tímabila er því líklega rétt. Í grein fjármálaráðherra var leiðrétt að hluta fyrir þessari skekkju með því að bæta fjármagnskostnaði við. Það bendir til að arðsemi af sölu nýbygginga hafi verið hlutfallslega meiri síðustu tvö ár samanborið við fyrri ár, vegna lágs vaxtastigs í sögulegu tilliti. SI hafa aftur á móti bent á að hagnaður sem hlutfall af veltu sé ekki óeðlilega mikill í sögulegu samhengi. Sá mælikvarði á arðsemi og framlegð er þó líklega bjagaður nú um stundir vegna mikilla umsvifa í uppbyggingu húsnæðis.“

Byggingaiðnaður hefur verið nær þrefalt arðbærari en aðrar greinar

„Á árunum 2015-2021 var arðsemi eigin fjár í byggingariðnaði nær þreföld á við aðrar greinar viðskiptahagkerfisins eða 26% á ársgrundvelli að meðaltali samanborið við 10% í öðrum greinum,“ skrifarVilhjálmur. „Samkvæmt framleiðsluuppgjöri Hagstofu Íslands var rekstrarafgangur í greininni nær 80 milljarðar króna á árinu 2022 og hafði aukist um 40% frá árinu 2021. Velta í byggingu húsnæðis jókst jafnframt um 40% á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2023 samanborið við 2022. Hlutfall lausra starfa bendir þá til að byggingaiðnaður sé sú grein sem býr við hvað mesta framleiðsluspennu af öllum atvinnugreinum. Við þessar aðstæður er fyrirséð að skattalegar ívilnanir tilfærist hlutfallslega mikið í hagnað greinarinnar og hafi hverfandi áhrif á umsvif eða verðlagningu til kaupenda. Velta má fyrir sér hvort niðurgreiðsla virðisaukaskatts sé réttlætanleg ráðstöfun á skattfé almennings við þessar aðstæður. Um þetta var ítarlega fjallað í minnisblaði fjármálaráðuneytisins til efnahags- og viðskiptanefndar.

Pólítískur ómöguleiki ríkisstjórnarinnar

„Gangi hagvaxtarspár fyrir árið 2023 og 2024 eftir mun hagvöxtur verða nær þrisvar sinnum meiri en á evrusvæðinu. Veigamiklar þensluaukandi ráðstafanir í ríkisfjármálum munu verða verðbólguvaldandi við þessar aðstæður,“ segir Vilhjálmur. „Ríkisstjórnin þarf að beita opinberum fjármálum markvisst en það mun reynast flókið mál á verðbólgutímum. Frá verkalýðshreyfingunni heyrist nú ákall um aukna tekjuöflun á sama tíma og kaupmáttur ráðstöfunartekna skal varinn. Frá atvinnulífinu heyrist krafa um niðurskurð en almenningur kallar eftir varðveislu velferðarkerfisins. Veigamiklar ráðstafanir á tekju- og gjaldahlið eru pólítiskur ómöguleiki við þessar aðstæður enda fyrirséð að þær kosti skerðingu í kaupmætti ráðstöfunartekna til skamms tíma. Eitthvað þarf þó að gefa eftir og í ljósi þess hefur BHM lagt til að dregið sé úr stuðningi við atvinnugreinar í þenslu. Er það sársaukaminni leið en flestar.“

Stóri vandinn á húsnæðismarkaði er fólksfjölgunin

„Að mati BHM skal aðeins beita ívilnunum í skattkerfinu ef ábati skattgreiðenda er meiri en kostnaður. Það getur átt við þegar þjóðhagslega mikilvæg atvinnugrein getur ekki starfað við markaðsforsendur, við aðstæður markaðsbrests,“ skrifar Vilhjálmur. „Ekki er að sjá að þessar aðstæður eigi við nú um stundir í byggingariðnaði. Aðfluttir umfram brottflutta voru 10 þúsund á síðasta ári og ekkert lát virðist vera á innflutningi vinnuafls. Haldi þessi ósjálfbæra fólksfjöldaþróun áfram verður skortur á húsnæði viðvarandi vandamál framvegis og arðsemi í byggingariðnaði há. Þetta er stóri vandinn fram undan. Hann verður aðeins leystur með fjölþættum aðgerðum á framboðs- og eftirspurnarhlið og með mótun atvinnustefnu. Skattalegar ívilnanir sem eingöngu fita fyrirtæki í fákeppnisstöðu munu duga skammt þó svo þær geti verið hluti af lausninni við ákveðin skilyrði.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí