Ólafur Ólafsson barðist gegn ofneyslu amfetamíns með útgáfu gulra korta

„Rétt er að taka fram að örvandi lyf eins og amfetamín og methylfenidat hafa í mörgum tilvikum ef þau eru notuð á réttan hátt skilað ágætum árangri við meðhöndlun á ADHD, sérstaklega hjá börnum. Hins vegar er ljóst ef tekið er mið af mikilli notkun þeirra hér á landi borin saman við önnur lönd að mikið er um mis- og ofnotkun þessara lyfja. Þessi mis- og ofnotkun býður hættunni heim og því er nauðsynlegt að grípa til aðgerða ef ekki á illa að fara. Aðgerða eins og útgáfa landlæknis á gulu kortunum sem skilaði góðum árangri við að sporna við misnotkun amfetamínlyfja á sínum tíma,“ segir Einar Magnússon, lyfjafræðingur og fyrrverandi lyfjamálastjóri heilbrigðisráðuneytisins.

Einar rifjar upp baráttuna gegn ofneyslu amfetamíns á síðustu öld í grein á Vísi. Og rekur neyslusögu þess á Íslandi:

„Amfetamín er kemískt fíkniefni (þ.e. ónáttúrulegt efni) sem hefur verið eitt mest notaða eiturlyfið í Evrópu síðan á 7. áratug síðustu aldar. Það hefur örvandi áhrif á þann sem tekur það og slær á þreytu. Amfetamín er ólöglegt fíkniefni á Íslandi og varðar eign á efninu við lög um ávana- og fíkniefni.

Amfetamín hefur hins vegar verið notað við lækningar frá því um 1935 en var fyrst framleitt árið 1887. Þegar lyfið kom fyrst á markað hér á landi var það selt án lyfseðils í apótekum enda talið hættulaust. Það reyndist þó ekki raunin.

Lyfið varð fljótt mjög vinsælt enda um að ræða örvandi efni sem slær á matarlist og veldur tímabundinni vellíðan og vímu. Fólki líður gjarnan eins og það eigi auðveldara með alla rökhugsun. Raunin er hinsvegar hið þveröfuga og neyslan getur valdið dómgreindarbresti, vanlíðan, kvíða, óróleika, ranghugmyndum og jafnvel ofsóknarbrjálæði. Þegar áhrifin fara að dvína tekur við mikil þreyta og þunglyndi.

Á sjötta áratug síðustu aldar voru amfetamíntöflur slegnar í nokkrum apótekum og í Lyfjaverslun ríkisins og notkun þeirra hafði aukist úr hófi sem og ýmis vandræði sem henni fylgdu. Eitthvað þurfti að gera og ákvað Ólafur Ólafsson landlæknir árið 1976 að grípa til aðgerða. Breyttar ávísunarreglur á amfetamínlyf voru teknar upp með tilkomu „gulu kortana“ svo kölluðu. Sjúklingar sem þurftu á amfetmínlyfjum að halda fengu þá afhent gult kort gefið út af landlækni þar sem skráð var heiti og magn amfetmínlyfs og annara örvandi lyfja sem heimilt var að afgreiða til viðkomandi sjúklings í apóteki á tilteknum tíma. Nefnd þriggja lækna tók ákvörðun um hverjir fengju gula kortið. Var aðallega um þrjá hópa að ræða: Fólk sem þjáðist af svefnsýki, þ.e. narkolepsi, gamalmenni sem voru farin að hrörna það mikið að ástæða þótti að hressa þau örlítið við, og svo börn sem áttu við oflæti að stríða en sá sjúkdómur flokkaðist þá undir hegðunarvandamál.

Gulu kortin gátu læknar sótt um fyrir sína sjúklinga til landlæknis og fengið, ef fallist var á umsóknina, heimild til að ávísa takmörkuðu magni amfetamíns, dexamfetamíns, metamfetamíns, metýlfenidats eða pemólíns. Kortin voru almennt gefin út til þriggja mánaða í senn, í byrjun meðferðar en líka allt að a.m.k. einu ári.

Fyrir tíma gulu kortana var mun auðveldara að verða sér úti um amfetamínlyf og talið að á þeim tíma hafi um 1500 Íslendinga neytt þess að staðaldri. Upptaka gulu kortana var afar árangursrík og vel heppnuð aðgerð þannig að um 1985 voru einungis um 150 Íslendingar sem neyttu amfetamínsað staðaldri samkvæmt læknisráði.

Umsýsla með kortunum hjá landlækni var nokkur, álagið fór vaxandi og því voru gulu kortin lögð niður í lok aldarinnar.

Frá aldamótum hefur hins vegar notkun methylfenidats sem talið hefur verið mildara en amfetamín stöðugt aukist og hvergi verið meiri en hér á landi svo vitað sé þrátt fyrir að til ýmissa aðgerða hafi verið gripið til að sporna við of- og misnotkun þess. Í vinnuhópi ráðherra sem vann að aðgerðum til að sporna við ofnotkun methylfenidats árið 2010 var m.a. skoðað hvort taka ætti aftur upp gulu kortin. Við þá skoðun kom í ljós að hjá Sjúkratryggingum væri unnið að svipaðri umsýslu vegna lyfjaskírteina og var um gulu kortin hjá landlækni. Vinnuhópurinn lagði því til að í stað þess að taka upp gul kort hjá landlæknisembættinu á nýjan leik yrði reynt að ná fram sams konar takmörkunum með nýjum vinnureglum um útgáfu lyfjaskírteina hjá sjúkratryggingum. Það hefur hins vegar ekki gengið að vonum og notkun methylfenidats stöðugt aukist og er enn hvergi meiri en hér á landi.“

Myndin er af Ólafi Ólafssyni fyrrum landlækni.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí