Vika til þingsetningar
Í dag, þriðjudag, er vika til þingsetningar, sem verður þriðjudaginn 12. september. Starfsáætlun Alþingis hefur verið birt á vef þingsins. Gert er ráð fyrir að þingfundir verði haldnir í tólf vikum haustsins, allt frá tveimur til fimm daga í viku.
Þar er meðtalin næsta vika. Á miðvikudag, daginn eftir þingsetningu, flytur forsætisráðherra stefnuræðu en á fimmtudag og föstudag verða fjárlög til umræðu. Utan þessara daga, sem eru með fasta dagskrá, verða almennir þingfundir fram að áramótum, samkvæmt dagskránni, alls 37.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward