Sósíalistar krefjast þess að ríkisstjórnin geri allt sem mögulegt er til að stöðva fjöldamorðin á Gaza

Hernaður 28. okt 2023

Á sameiginlegum fundi framkvæmda- og málefnastjórnar Sósíalistaflokksins var samþykkt ályktun þar sem tekið var undir áskorun samstöðufundar með Palestínsku þjóðinni á Austurvelli 15. október 2023. Þar segir: 

„Í augsýn alls heimsins er framið þjóðarmorð sem verður að stöðva. Ísland hefur viðurkennt rétt palestínsku þjóðarinnar til að stofna eigið ríki og að palestínskir flóttamenn eigi rétt á að snúa aftur til heimkynna sinna. Það er skylda íslenskra stjórnvalda, sem lýsa yfir mikilvægi og réttmæti mannréttinda og alþjóðalaga, að liðsinna Palestínumönnum í baráttu þeirra fyrir frelsi og mannréttindum í eigin landi.

Með ofurefli liðs og öflugum hernaðartækjum ræðst her Ísraels til atlögu gegn Palestínumönnum á Gaza. Hús eru jöfnuð við jörðu, sjúkrahús og skólar eyðilagðir og þúsundir manna drepnir. Á hverjum degi ræðst landtökufólk úr ólöglegu landtökubyggðunum á Vesturbakkanum gegn bændum og öðrum íbúum Palestínu, þeir brenna akra, höggva olífutré sem tekur áratugi að rækta, bera eld að húsum og bifreiðum – og drepa jafnt unga sem aldna.

Við skorum á Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra að senda ríkisstjórn Ísraels skorinorða kröfu um að stöðva fjöldamorðin á Gaza tafarlaust!“

Í ályktun Sósíalista segir síðan: „Ísland er herlaus þjóð og ætti ætíð að standa með friði gegn stríði, krefjast vopnahlés og viðræðna en ekki leggjast á sveif með þeim sem vilja beita hervaldi til að knýja fram þá niðurstöðu sem þeir telja æskilega.

Jöfnuður, mannvirðing og samkennd er bestu leiðarljósin til að fyrirbyggja stríðsátök. Því miður hafa svokölluð Vesturlönd aldrei verið fjær því að láta þessi markmið vísa sér leið. Lýðræðið innan ríkjanna er veikt, áhrif almennings lítil og stjórnvöld þjóna fyrst og fremst fjármagnseigendum og eigendum stórfyrirtækja. Og þar með hergagnaframleiðendum. Afleiðingin er viðvarandi stríð undanfarna áratugi og vaxandi spenna í samskiptum þjóða, grimmari ofbeldi og linnulausar mannfórnir samhliða hervæðingu hugarfarsins.

Sósíalistaflokkurinn hvetur fólk til að láta ekki undan þrýstingi stjórnvalda um að velja ætíð stríð og ógn, láta undan þeim ótta og þeirri andúð sem alið er á. Við munum ekki eignast bjarta framtíð nema hún sé byggð á von, virðingu og kærleika. Framtíð sem byggð er upp með hervaldi verður grimm, myrk og andstyggileg. Ef almenningur lætur undan stjórnvöldum sem knúin eru áfram af hagsmunum hergagnaframleiðenda mun hann uppskera heim þar sem stríð verður viðvarandi. Og stríð magna upp hatur og hefnd, allt það sem við ættum helst að forðast.

Ekki trúa hergagnaframleiðendum sem segjast ætla að færa okkur frið með vopnavaldi. Þau loforð stóðust ekki í Írak eða Afganistan, Sýrlandi eða Líbíu og þau munu heldur ekki rætast í Úkraínu eða Palestínu. Leiðin til friðar liggur út úr stríði.“

Í ályktuninni er síðan vísar í stefnu Sósíalistaflokksins um utanríkismál þar sem segir:

„Ísland er smáþjóð sem hefur þurft að berjast fyrir fullveldi í tímans rás en hefur þrátt fyrir smæð sína náð að öðlast sjálfstæði frá nýlenduríkjunum. Þá dýrmætu reynslu ber að virða og ber okkur skylda til standa með öðrum undirokuðum þjóðum í svipuðum sporum. Í því samhengi má nefna grannþjóðir okkar eins og Grænlendinga og Færeyinga sem og fjarlægar og stríðshrjáðar þjóðir eins og Palestínumenn og Kúrda.

Í stað þess að vera máttlaus smáþjóð innan hernaðarbandalags viljum að þjóðin styrki samband sitt og samvinnu við nágrannaþjóðirnar og aðrar smáþjóðir og komi á friðarbandalagi. Slíkt bandalag verði valkostur á móti núverandi veru landsins í Nató. Á sínum tíma var innganga í Nató ekki borin undir þjóðina. Það ætti að gera sem fyrst. Á þann hátt má vinna betur að mannréttindum og lýðræðislegri stjórnskipan innan heimsins gegn auðvaldi og kúgun stærri ríkja gegn smærri. Þá skal Ísland ævinlega vera herlaust og vopnlaust. Við fordæmum allt ofbeldi og styðjum á engan hátt stríðsátök eða kúgun eins ríkis gegn öðru.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí