Brjálæðislegar launagreiðslur hjá framkvæmdastjórum lífeyrirssjóða þrátt fyrir mikið tap

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að þrátt fyrir gífurlegt tap hjá lífeyrissjóðum þá sé rekstrarkostnaður þeirra í raun ótrúlega mikill. Það veki sérstaklega athygli hve gífurlega mikið fer í kostnað við stjórnendur.

„Hvers eigum við að gjalda? Árið 2022 töpuðu lífeyrissjóðirnir um 845 milljörðum. Rekstrarkostnaður fimm stærstu sjóðanna var 20,8 milljarðar. Þar af voru fjárfestingargjöld 15 milljarðar (þrátt fyrir gríðarlegt tap) og skrifstofu og stjórnunarkostnaður 5,8 milljarðar.  Launagreiðslur til framkvæmdastjóra fimm stærstu sjóðanna námu 167 milljónum á árinu 2022 eða að meðaltali 33,4 milljónir á hvern,“ segir Ragnar Þór á Facebook.

Hann bendir á að þetta sé þó einungis 5 af 21 lífeyrissjóðum. „Von er á miklu tapi á árinu 2023 og ljóst að margir sjóðir muni skerða réttindi. Eignir lífeyrissjóðanna árið 2022 lækkuðu um 763 milljarða að raunvirði frá árinu 2021 samkvæmt tölum Seðlabankans og Landssamtaka lífeyrissjóða,“ segir Ragnar Þór og heldur áfram:

„Mismunur á iðgjöldum í samtryggingardeildir (289,4 milljarðar, séreignasparnaður dregin frá) og útgreiðslum samtryggingardeilda (207,3 milljarðar) var 82,1 milljarður sem bætist við virðisrýrnun eigna á milli ára. Má því álykta að tap lífeyrissjóðanna á síðasta ári (2022) hafi verið um 845 milljarðar.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí