Spennandi fréttaumræða á Samstöðinni í beinni í dag

Klukkan 16 í dag hefst þátturinn Vikuskammturinn á Samstöðinni í umsjá reynsluboltans Gunnars Smára Egilssonar.

Við borðið sitja Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson blaðamaður, Harpa Kristbergsdóttir aðgerðasinni, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir uppistandari og handritshöfundur og Sigurgeir Sigmundsson gítarleikari.

Fréttir vikunnar verða til umræðu og er af nógu að taka. Þær einkenndust af óveðri, ósætti og óróa, framboðum og óljósri eftirspurn eftir frambjóðendum, hávaða, þöggun og spillingu.

Hægt er að horfa á Samstöðina á rás fimm á Símanum, á spilarinn.is, youtube og ekki síst með því að læka síðu Samstöðvarinnar á facebook en þá opnast hlið að gervallri þáttagerð og þjóðmálaumræðu Samstöðvarinnar sem er yfirgripsmikil á degi hverjum.

Þá er Samstöðin útvarpsstöð og hægt að hlusta á 89,1.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí