Efling segir einkum þrennt standa út af borðinu svo hægt sé að undirrita kjarasamninga

Kjaramál 4. mar 2024

Vel mögulegt ætti að vera að undirrita nýja kjarasamninga á næstu einum til tveimur sólarhringum, að mati Eflingar. Til þess að svo megi verða þurfa Samtök atvinnulífsins (SA) að klára ákveðin atriði sem enn standa út af borðinu. 

Samkomulag varðandi forsenduákvæði kjarasamninga stendur og um það er sátt á milli aðila. Hið sama má segja um launalið samninganna. 

Það er einkum þrennt sem út af stendur af málum Eflingar. 

Í fyrsta lagi er það útfærsla á styrkingu uppsagnarverndar starfsfólks á almennum vinnumarkaði. Efling hefur þar lagt fram tillögur sem eru í raun útfærsla á lögum um vernd uppljóstrara og eru mjög aðgengilegar fyrir atvinnurekendur. Tillaga Eflingar myndi aðeins snerta vinnustaði þar sem ekki eru starfandi trúnaðarmenn og þar sem fyrirtæki hafa ekki sjálf sett sér verklagsreglur um meðhöndlun ábendinga og kvartana starfsfólks. Þá myndu ákvæðin aðeins eiga við um vinnustaði þar sem vinna fimm eða fleiri starfsmenn.

Í öðru lagi fer Efling fram á að gerðar verði orðalagsbreytingar í kafla samninganna um trúnaðarmenn, og eru þær kröfur mjög viðráðanlegar fyrir atvinnurekendur. Þær snúa meðal annars að því hægt sé að fjölga trúnaðarmönnum á stærri vinnustöðum, en eins og staðan er í dag er gert ráð fyrir einum trúnaðarmanni á vinnustað þar sem vinna 5-50 starfsmenn og tveimur þar sem fjöldinn er meiri. Ekki er gert ráð fyrir að trúnaðarmenn séu fleiri en tveir, og fer Efling fram á að framvegis verði hægt að skipa fleiri trúnaðarmenn í eðlilegu hlutfalli við fjölda starfsfólks á hverjum vinnustað. 

Þá þarf að tryggja að trúnaðarmenn fái greidd full regluleg laun, en ekki bara dagvinnulaun, við setu á trúnaðarmannanámskeiðum. Sömuleiðis þarf að tryggja að trúnaðarmenn sem sitja í samninganefndum geti sótt samningafundi og fundi nefndarinnar án þess að verða fyrir launatapi. Slíkt er bundið í samninga á opinbera vinnumarkaðnum og afnema þarf þetta misrétti milli trúnaðarmanna á almenna og opinbera markaðnum.

Í þriðja lagi er enn ekki búið að klára breytingar á texta kjarasamnings sem snúa að kjörum ræstingafólks, þess hóps á almennum vinnumarkaði sem býr við kröppust kjör af öllum samkvæmt könnunum. Þótt sjái til lands í öðrum þáttum varðandi kjör ræstingafólks vantar enn upp á að skerpt verði á orðalagi. Hefur það aðallega með að gera skilgreiningar á því hvenær ræstingafólk er í tímamældri ákvæðisvinnu og hvenær ekki. Brögð eru að því að atvinnurekendur reyni að skjóta sér framhjá því að greiða umsamið álag sem með réttu á að greiða þegar um tímamælda ákvæðisvinnu er að ræða. Með því að hnykkja á orðalagi í samningunum hvað þetta varðar vill félagið taka af öll tvímæli. 

Fleiri atriði eru ótalin sem eftir á að ganga frá við samningaborðið, en það þrennt sem nefnt er hér að framan eru þau mál þar sem helst stendur enn á viðbrögðum frá SA. 

Atkvæðagreiðsla um verkfallsboðun ræstingafólks innan raða Eflingar á að hefjast klukkan 16:00 í dag. Engin ákvörðun hefur verið tekin um annað en að hún fari fram. Verði hins vegar staðan sú að samninganefnd félagsins fái svör frá SA sem hægt er að sættast á, og líkur standi þá til þess að takast megi að ljúka kjarasamningum á næstu sólarhringum, verður metið hvort endurskoða eigi hvort atkvæðagreiðslan fari þá fram. 

„Okkar viðsemjendur vita vel hvaða mála við krefjumst lausnar á til að hægt verði að undirrita kjarasamning. Við höfum kynnt og rökstutt þessi mál margítrekað á samningafundum frá því í lok desember. Samninganefnd Eflingar mun ekki láta óðagot eða skipulagða tímapressu koma í veg fyrir að fullri lendingu verði náð í okkar málum,“  segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.

Frétt af vef Eflingar.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí