Dauðsföll í fangelsum rekjanleg til skorts á geðheilbrigðisþjónustu

Skortur á fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum Ísland er dauðans alvara. Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, segir í fréttatilkynningu að alvarleg atvik, þar á meðal dauðsföll, megi rekja til skorts á fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum landsins. Félagið telur stöðuna alvarlega og býður því Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra not af fagfólki félagsins.   

Hér fyrir neðan má lesa fréttatilkynningu félagsins í heild sinni.

Afstaða býður heilbrigðisráðherra not af fagfólki Afstöðu til að sinna bakvöktum í geðheilbrigðismálum í fangelsunum

Í ljósi atburða í fangelsum landsins undanfarin misseri þar sem vöntun á geðheilbrigðisþjónustu og bakvaktar neyðarþjónustu kemur við sögu, hefur Afstaða, félag fanga og annarra áhugamanna um bætt fangelsismál og betrun, ákveðið að bjóða Heilbrigðisráðherra, sem ber ábyrgð á heilbrigðismálum fanga að nýta vettvangsteymi Afstöðu tímabundið til að veita föngum sál-félagslegan stuðning utan þess tíma sem engin sérhæfð þjónusta er til staðar.

Í síðustu viku gekk til liðs við teymið Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur en hún hefur mikla reynslu við að vinna með jaðarsettum einstaklingum og hefur m.a verið sæmd Florence Nightingale-heiðursorðinni, æðsta alþjóðlega heiðri sem hjúkrunarfræðingi getur hlotnast. Þá kom einnig til liðs við félagið Ingvi Kristinn Skjaldarson, flokksleiðtogi Hjálpræðishersins og sálgætir. Ingvi hefur, líkt og Guðbjörg, yfirgripsmikla reynslu af því að starfa með einstaklingum sem glíma við vímuefnavanda og annan félagslegan vanda.

Vettvangsteymi Afstöðu samanstendur því nú af tveimur geðhjúkrunarfræðingum, tveimur hjúkrunarfræðingum, þremur félagsráðgjöfum, sálgæti, áfengis og vímuefnaráðgjafa ásamt átta sérhæfðum jafningjum sem veita stuðning og ráðgjöf út frá reynslu sinni. Það er því ljóst að vettvangsteymi Afstöðu er vel til þess fallið að veita stuðning og ráðgjöf í krafti sérhæfðrar fagþekkingar sinnar og reynslu á þörfum fanga.

Stjórn Afstöðu telur að rekja megi alvarleg atvik í fangelsum landsins vegna skorts á fullnægjandi geðheilbrigðisþjónustu í fangelsum landsins. Meðal annars dauðsföll. Við það verður ekki lengur unað að ekki sé bakvaktarþjónusta á stað, sem vistar tugi frelsissviptra einstaklinga. Einstaklinga sem glíma oft við alvarlegan geðrænan og líkamlegan vanda en að mati félagsins er slíkt óásættanlegt. Í ljósi þess býður stjórn Afstöðu heilbrigðisráðherra að nýta þekkingu vettvangsteymis Afstöðu til að veita stuðning á bakvöktum í fangelsunum þangað til að viðunandi lausn finnst.

Þá kallar félagið eftir í krafti sterkrar stöðu sinnar í málaflokknum að fá að fara yfir með Heilbrigðisráðuneytinu hvað hafi brugðist þegar fangi lést nýverið og hvaða úrbætur standi til að gera í kjölfar þess hörmulega atviks.

Félagið vill þó taka fram að Afstaða er nú þegar þátttakandi í vinnuhópum í Heilbrigðisráðuneytinu um geðheilbrigðisþjónustu við fanga og er varðar meðferðarmál fanga. Það má þakka ráðuneytinu fyrir það frumkvæði, en stjórn Afstöðu telur að veita þurfi sólarhringsþjónustu þegar í stað til að tryggja öryggi fanga.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí