Segir Agnesi og Arnþrúði hafa kallað Þóru „tussu“ á fundi Blaðamannafélagsins 

Það er óhætt að segja að aukaaðalfundur Blaðamannafélagsins  sem haldinn var í gærkvöld hafi verið átakafundur. Svívirðingar gengu manna á millum og náðu líklega ákveðnum hápunkti, að sögn viðstaddra, þegar Agnes Bragadóttir, fyrrverandi blaðamaður Morgunblaðsins, og Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu, kölluðu Þóru Kristínu Ásgeirsdóttur, fjölmiðlakonu sem hefur komið víða við svo sem á Stöð 2 og Fréttatímanum, í heyrandi hljóði „tussu“. Það fullyrði í það minnsta María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp í samtali við Rauða borðið.

Björn Þórláksson og María fara yfir þennan átakafund við Rauða borðið í kvöld. Bæði eru sammála að þessi fundur hafi ekki verið stéttinni til sóma. Í mjög stuttu máli má segja að á fundinum hafi tvær fylkingar tekist á: annars vegar fyrst og fremst blaðamenn sem hafa lagst í helgan stein, eldri borgarar, sem flestir styðja fyrrverandi formann Hjálmar Jónsson, og svo yngri, starfandi blaðamenn. Stuðningur við Sigríði Dögg Auðunsdóttur, núverandi formann Blaðamannafélagsins, er meiri innan síðarnefndu fylkingarinnar en þó ekki eins afgerandi og stuðningur við Hjálmar er meðal eldri blaðamanna.

Með öðrum orðum þá eru deilur Hjálmars og Sigríðar Daggar orðnar að hálfgerðum kynslóðaátökum innan félagsins. Þessi átök virðast þó vera svo hörð og andstyggileg að sumir tala af fullri alvöru um að félagið klofni ef svo heldur áfram.

María Lilja segir að eldra fólkið hafi verið áberandi dónalegra á fundinum: „Bara svo það sé sagt, þá sendu eldri borgarar ekki sína bestu menn og málsvara í gær. Enda kom mikill dónaskapur frá þessum ákveðna hópi. Orð eins og „tussa“ og einhver svona ljót niðrandi orð. Þegar Þóra Kristín var að tala, hún var að tala gegn þessum hópi, þessari órólegu deild sem fylgir Hjálmari. Það voru framíköll, þetta er eitthvað sem maður á ekki að venjast. Þær voru þarna Agnes Bragadóttir og Arnþrúður Karlsdóttir sem sátu og kölluðu hana „tussu“.“

Uppfært: Orð stendur gegn orði, því hvorki Arnfrúður né aðrir fundargestir kannast við að hafa látið niðrandi ummæli falla um Þóru Kristínu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí