Segir ruglukolla ógna uppbyggingu

Ljótu ruglukollarnir hafa tekið yfir Sósíalistaflokkinn. Þeir virðast stefna að því að eyðileggja þar allt sem hefur verið byggt upp.

Þessi orð lætur Gunnar Smári Egilsson falla í morgunsárið í facebook-hópnum Rauði þráðurinn vegna fréttar á forsíðu Moggans í dag um fjármál flokksins og tengda starfsemi.

„Nú er Karl Héðinn Kristjánsson aftur mættur í Moggann að ýja að því að eitthvað sé undarlegt við fjármál flokksins og ákvarðanir um ráðstöfun styrkja,“ segir Gunnar Smári. Samkvæmt því sem fram kemur í Mogganum í dag leiddi Karl Héðinn hallarbyltingu í Sósíalistaflokknum á dögunum.

Fæstir landsmenn hafa sennilega áhuga á erjum innan Sósíalistaflokksins. Halda mætti fram að flestum þætti það stærri frétt ef friður ríkti innanborðs í einn dag eftir deilurnar undanfarið.

Hins vegar hafa margir landsmenn lýst áhyggjum af framtíð Samstöðvarinnar. Á Rauða þræðinum rifjar Gunnar Smári, ritstjóri Samstöðvarinnar, upp tilurð fjölmiðilsins:

„Á sameiginlegum fundi framkvæmda- og málefnastjórna Sósíalistaflokksins 1. ágúst 2021 var samþykkt tilboð til kjósenda sem kallað var Burt með elítustjórnmál þar sem kom fram að styrkir til Sósíalistaflokksins yrðu ekki notaðir til að byggja upp flokkinn heldur Samstöðina og hreyfingar hinna fátæku. Þá voru í þessum stjórnum fólk sem tilheyrir yfirtökuhópnum sem náði völdum á aðalfundi Sósíalistaflokksins og situr nú í framkvæmdastjórn flokksins, svo sem Sæþór Benjamín Randalsson, Hallfríður Þórarinsdóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir. Nú kannast þetta fólk ekki við neitt, vegna það hentar ekki rógsherferð þeirra gegn öllum þeim sem hafa byggt upp þennan flokk en er ekki í yfirtökuklíkunni,“ segir Gunnar Smári.

„Þetta tilboð var síðan samþykkt á félagsfundi flokksins í Tjarnarbíói 19. september sama ár ásamt öðrum tilboðum flokksins. Þetta voru loforð flokksins til kjósenda, sem greiddu þeim síðan atkvæði sitt. Og í raun er styrkurinn framlag þessara kjósenda, upphæð hans ræðst af fjölda kjósenda sem kusu flokkinn, stefnu hans og tilboð. Ákvörðunin var síðan endurnýjuð á félags- og aðalfundum þar sem þessi tilhögun var oft rædd og staðfest með samþykktum reikninga þar sem ráðstöfun styrkjafjár kom fram í ársreikningum sem samþykktir voru af félagsfólki. Nú síðast 24. maí síðastliðinn með atkvæðum yfirtökuhópsins sjálfs. Um þessa ákvörðun flokksins hefur margsinnis verið rætt opinberlega, hún er vel þekkt og öllum kunn sem vilja vita.

Það má benda á að Sósíalistaflokkurinn hefur haft flipa á vef sínum árum saman þar sem Vorstjarnan er kynnt og þar sem segir: Vorstjarnan er fjármögnuð með framlögum og gjöfum einstaklinga og félaga, t.d. styrktarframlagi Reykjavíkurborgar til Sósíalistaflokks Íslands og helmingnum af styrk ríkissjóðs til flokksins.

Þessar ákvarðanir flokksins um ráðstöfun fjár eru enn í gildi eins og loforð hans til kjósenda að nýta féð ekki í að byggja upp innra starf flokksins heldur til að efla hagsmunabaráttu fátækra hópa og byggja upp fjölmiðlun og almenna umræðu. Umfjöllun fjármál flokksins ættu að snúast um hvort markmið yfirtökuhópsins sé að flokkurinn gangi á bak orða sinna og eyði styrknum í að greiða fólki í yfirtökuhópnum laun, svo þau séu á fullum launum við að eyðileggja þennan flokk. Þetta er meiriháttar breyting sem yfirtökuhópurinn hlýtur að leggja fyrir næsta aðalfund svo almennir félagar geti greitt um þetta atkvæði. Þangað til þessum ákvörðunum og loforðum hefur verið breytt eru þau í fullu gildi,“ skrifar Gunnar Smári.

Stjórnarfundur fór fram í Alþýðufélaginu sem á Samstöðina í gærkvöld. Eftir því sem næst verður komist veltur rekstur Samstöðvarinnar ekki lengur á pólitískum framlögum. Eru líkur á að fjölmiðillinn svari kalli almennings og eftirspurn með áframhaldandi krafti og auki áfram þjónustu, þar sem stuðningur áskrifenda/styrktaraðila skiptir sköpum.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí