Heimilin og neytendurnir sem bera byrðarnar

Vilhjálmur Birgisson skrifaði:

Raun stýrivextir á Íslandi – 30 ára saga af níði á heimilum og neytendum

Ísland er í dag með hæstu raun stýrivexti í Evrópu – 3,5%.

Í Finnlandi eru þeir 0,25%, í Bretlandi 0,2% og í Danmörku eru þeir jafnvel neikvæðir (-0,7%).

Það þýðir að íslensk heimili og fyrirtæki búa við gólfið sem allt vaxtakerfið hvílir á sem er 14–17 sinnum hærra en í nágrannalöndunum.

En þetta er ekki nýtt. Þetta er ekki tilfallandi. Þetta er ekki einhvers konar slys.

Þetta hefur verið svona ár eftir ár, áratug eftir áratug. Það má fara 30 ár aftur í tímann og staðan er alltaf sú sama:

Hæstu raun stýrivextirnir á Íslandi.

Heimilin og neytendurnir sem bera byrðarnar.

Bankarnir og fjármálakerfið sem fá að sitja undir skjaldborg stjórnvalda.

Og spurningin sem stjórnvöld og Seðlabankinn verða að svara er þessi:

*Hví er þetta látið viðgangast?

*Hví er ætíð sleginn skjaldborg um fjármálakerfið?

*Hví er heimilum og neytendum ítrekað fórnað á blóðugu altari okurvaxta fjármálakerfisins?

*Hví á almenningur alltaf að bera byrðarnar á meðan bankarnir tryggja sér gróða?

Þetta er ekki „stöðugleiki“ – þetta er kerfisbundið níð sem hefur verið viðhaldið af stjórnvöldum og Seðlabankanum í áratugi.

Ísland er land dýrasta peningsins – ekki vegna verðbólgu, ekki vegna náttúrulögmála, heldur vegna þess að stjórnvöld hafa valið að verja fjármálakerfið og fórna heimilunum.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí