Veðurfræðingur baunar á Helga Seljan

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur er ekki ánægður með að Helgi Seljan fjölmiðlamaður hafi afkynnt morgunþátt hans og Veru Illugadóttur í morgun með orðunum: „ÞAÐ ER KOMIÐ HAUST.“

„Plagsiður að fólk telji sumarið búið eftir verslunarmannahelgi. Í kolli Helga kannski líka þar sem þessi frekar þungalamalega útfærsla morgunútvarpsins tekur enda í þessari viku,“ segir Einar.

Veðurfræðingurinn bendir á að veðurfarslega sé fátt sem minni á haustið þessa dagana. Fallegt hafi verið að koma út í mildan sumarmorguninn í dag.

Egill Helgason blandar sér í umræðuna á facebook-síðu Einars og segir að í landi hins stutta sumars sé óráð að ræða haustkomu fyrr en viku af september.

Hvort Helgi Seljan var kannski bara að grínast er svo opin spurning.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí