Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrum hæstaréttardómari, vill að Silju Báru Ómarsdóttur, nýskipuðum rektor Háskóla Íslands, verði vikið úr starfi.
Hann telur að Silja Bára hafi fyrirgert rétti sínum til að sitja áfram með því að tjá sig ekki um uppþot á dögunum þegar ísraelskur maður með tengingar við áróðursöfl í Ísrael, var púaður niður og honum meinað að flytja erindi. Þjóðarmorðið á Gaza átti ekki síst þátt í viðbrögðum við heimsókn mannsins hingað til lands.
Jón Steinar vitnar í facebook-pistli sínum í leiðara Moggans um þetta mál í dag. Hann bætir um betur og segir að með þögninni, að aðhafast ekki gegn kennurum sem komu í veg fyrir fyrirlesturinn, hafi Silja Bára fyrirgert rétti sínum til að starfa áfram sem rektor.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.