Verið heima, vanbúnir greiði kostnað

Lögreglan hefur sent fjölmiðlum tilkynningu sem óskað er að komið sé á framfæri.

„Vegna áframhaldandi snjókomu á höfuðborgarsvæðinu er fólk eindregið hvatt til að halda sig heima og vera alls ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Gul viðvörun vegna veðurs er í gildi í umdæminu, en hún mun breytast í appelsínugula viðvörun kl. 17, en áfram er spáð mikilli snjókomu eða slyddu með lélegu skyggni. Fólk sem fór að heiman í morgun er beðið um að huga að heimferð sem allra, allra fyrst (mjög gott ef fólk er komið til síns heima fyrir kl. 15) því færðin og veðrið á bara eftir að versna eftir því sem líður á daginn,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Áfram má búast við miklum samgöngutruflununum og fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.

„Þetta er dagurinn og kvöldið til að vera heima og hafa það notalegt, en ekki ana út í umferðina og sitja þar fastur! Fólk er beðið um að sækja ekki þjónustu í dag sem getur auðveldlega beðið betri tíma, t.d. sundlaugar og bókasöfn, en hvatt er til að þeim verði lokað. Nauðsynlegri þjónustu verður hins vegar haldið úti, t.d heilbrigðisstofnanir og ýmiss velferðarþjónusta.“

Þá er það ítrekað, enn og aftur, að ökumenn á vanbúnum ökutækjum eiga alls ekki að vera í umferðinni í þessari miklu vetrarfærð.

„Þrátt fyrir aðvaranir hefur borið mikið á því dag og hefur það ollið mjög miklum vandræðum. Vanbúin ökutæki verða fjarlægð á kostnað eigenda. Best er samt að allir sem mögulega geta haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir, óháð öllum dekkjabúnaði ökutækja,“ segir í tilkynningu lögreglu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí