800 briddsspilarar etja kappi á stórmóti í Hörpu

Mjög góð þátttaka verður í tvímenningskeppni Reykjavík Bridge Festival sem hefst í Hörpu á fimmtudagskvöld. Þá er vel bókað í sveitakeppnina sem hefst á laugardag. Horfir í að hátt í 800 spilarar taki þátt í þessum tveimur mótum. Rætt var um Bridgehátíðina í þætti Samstöðvarinnar í gær: https://www.youtube.com/live/RNkiNFf7TqY?si=WmWk9T9vHcS-muWz

Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, segir að útlit sé fyrir að um 150 pör muni taka þátt í tvímenningum og 90 sveitir taki í kjölfarið þátt í sveitakeppninni. Margir af sterkustu briddsspilurum heims hafa flogið til Íslands vegna mótsins. Margir þeirra taka þátt í ofurmóti WBT sem hófst í morgun og fer einnig fram í Hörpu.

Ljóst er að mótið er mikil búbót fyrir Reykjavík og ferðaþjónustu hér á landi. Matthías segir að mótin fram undan séu hápunktur briddstarfsins á Íslandi á hverju ári, mikil stemmning og gleði ríki í herbúðum briddsara.

Sex íslenskar sveitir spila í WBT ofurmótinu sem er er metþátttaka hér innanlands. Meðal annars spilar íslenska landsliðið. Verður við ramman reip að draga vegna styrkleika erlendu sveitanna. Landsliðissveitin okkar gerði sér þó lítið fyrir síðastliðið sumar og náði verðlaunum á WBT-móti í Kaupmannahöfn og getur allt gerst.

Mótin eru opin áhorfendum og eins verða vakdar viðureignir sýndar á briddsforrinu BBO á netinu.

Meðal viðureigna í fyrstu umferð í dag má nefna að sveit Grant Thornton spilar gegn Zia og félögum í sveit Saxena.

Team Iceland, það er að segja íslenska landsliðið, spilar gegn, Evenstad, Lahrman og félögum í sveit De Botton.

Iceland Seniors spila gegn Schaltz, Bilde og félögum í sveit Polar pact.

Iceland Ladies (kvennalandsliðið) spila gegn Ragnarrök .

The Doctor spilar gegn sveit Allfrey.

Matthías hvetur landsmenn til að líta við í Hörpu, fylgjast með besta bridds í heimi og skrá sig til þátttöku, þar sem Monrad kerfi Reykjavík Open gerir ráð fyrir að spilarar takist á við aðra spilara með álíka getu. Þannig má ætla að byrjendur spili mest við aðra byrjendur. Skráning hér: Reykjavík Bridge Festival

Myndin er af þekktasta spilara heims, Zia Mahmood, en hann er kominn til Reykjavíkur og verður meðal keppenda. Mynd: Aðalsteinn Jörgensen.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí