Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir ofurlaun borgarstjóra vera ígildi sturlunar.
Sólveig Anna deilir á félagfsmiðlum launakjörum borgarstjóra af vef Reykjavíkurborgar þar sem fram kemur að mánaðarleg umbun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur eru rétt tæplega þrjár milljónir.
„Þvílík sturlun. Svo þegar þetta fólk lætur af embætti þykist það aldrei hafa tekið sér frí, voðalegur bömmer, og fær því með sér sem kveðjugjöf orlofsgreiðslur upp á margar milljónir eins og ekkert sé. Svo er fólk undrandi á því að ekkert gangi að hemja launaskrið og ná niður verðbólgu,“ segir Sólveig Anna.
Hún bætir við að pólitísk yfirstétt fari á undan með ömurlegu fordæmi og skammti sér milljónir eins og ekkert sé meðan hún ráði ekki einu sinni við að tryggja sómasamlega grunnþjónustu.

„Hvaða hvata hefur þessi yfirstétt til þess að sýna ráðdeild – bókstaflega enga, fær að komast upp með hvað sem er – enda á ráðdeildin aðeins að vera hjá láglaunafólkinu sem starfar í fjársveltum umönnunarkerfunum sem enginn þykist bera ábyrgð á.“