Vexti Seðlabankans fari niður í 4 prósent

„Ég held að Seðlabankinn eigi að vera sjjálfstæður í sínum störfum,“ segir Ásta Lóa Þórsdóttir, þingflokksformaður Flokks fólksins.

En bætir við að vegna þess hve hávaxtastefna Seðlabankans sé umdeilanleg og einhöm og skuldugum heimilum stórskaðleg þurfi að vera til varnaglar sem pólitískir fulltrúar geti beitt stofnanir eins og Seðlabankann þegar bankann ber af leið.

Þetta kemur fram í samtali Björns Þorláks við Ástu Lóu um vexti við Rauða borðið á Samstöðinni.

Bankinn haldi uppi gríðarháu  vaxtastigi. Telur Ásta Lóa að færa mætti vexti niður í áföngum niður í fjögur prósent. Bankinn hamri á því vonlita markmiði að ætla að ná verðbólgu niður í 2,5% þar sem svipa ofurhárra stýrivaxta eigi að knýja fólk sem hafi ekkert svigrúm til að breyta fjármálahegðun sinni til að breyta hegðun. Mikilvægt sé að kjörnir fulltrúar geti gripið fram í hjá embættismönnum og á hún þar við seðlabankastjóra og fólkið sem skipar peningastefnunefnd bankans.

Einnig ræðir Ásta Lóa hvað gerðist bak við tjöldin þegar hún sagði af sér ráðherradómi í fyrra.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí