Sigmundur Ernir gagnrýninn á umhverfismál

„Að halda að við björgum heiminum með orkuframleiðslu á íslandi er alveg út í hött.“

Þetta segir Júlíus Sólnes, fyrsti umhverfisráðherra Íslands í þættinum Græna borðið á Samstöðinni í dag.

„Við erum ekki orkustórveldi, við erum dvergar í hnattrænu samhengi. Við þurfum að koma okkur niður á jörðina og hugsa um okkur sjálf og hvernig við viljum nýta þessa raforkumöguleika fyrir okkur sjálf. Stóriðja kemur einungis til Íslands til að fá rafmagnið nánast gefins,“ bætir Júlíus við.

Sigmundur Ernir Rúnarsson, þingmaður Samfylkingarinnar, er einnig gagnrýninn í þættinum og segir að Íslendingar þurfi að mennta sig frá orkuskorti.

„Við höfum verið að fjölga láglaunastörfum í einhverri sókn eftir vexti.“ 

Um sérstakt umhverfisráðuneyti óháð orkuráðuneyti, segir Sigmundur Ernir:

„Þetta eru mannanna verk og það er hægt að breyta þeim. Það kemur vel til greina að breyta þessu aftur. Umhverfismálin eiga að vera á ákveðnum stað með sýn á náttúruvernd, umhverfismál og loftslagsmál. Það verður að vera á pari við það sem best er gert í heiminum. Orkumálin þurfa að vera með öðrum hætti en verið hefur þar sem hefur verið rýnt á stórkaupendur.“ 


Um að hafa orkumál. umhverfismál og loftslagsmál á einni könnu, segir Sigmundur Ernir: „Það er þrýstingur inni í Samfylkingunni og raddir á lofti um að breyta ráðuneytisskipaninni til baka yfir í sjálfstætt umhverfisráðuneyti.“ 


Honum finnst pólitísk umræða hafa minnkað um umhverfismálin sem hafi í raun týnst í umræðu um að það hafi ekki verið virkjað neitt í sjö ár.

„Það er beinlínis sótt að okkur sem eitthvert ódýrt land sem er með lélegt regluverk og það sé fljótur gróði að koma til Íslands.“ 

„Ég tala algjörlega fyrir því að fá eitt sjálfstætt umhverfisráðuneyti í þágu náttúrunnar og orkumálin þá á annarri hendi.“

Um jafnræði eða ójafnræði og þrýsting hefur þingmaðurinn þetta að segja:
„Það hefur verið tilhneiging í þá átt að sumir komast ekki að borðinu, komast aldrei á nefndarfundi þingsins, á meðan Viðskiptaráð situr alla fundi.“


„Þrýstingurinn frá hagsmunagæslunni hefur aukist um helming og ákafinn er orðinn miklu illskeyttari.“ 

Græna borðið verður sýnt á Samstöðinni klukkan 18 í dag.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí