Kári Jónsson skrifaði:
„Augljóst er öllum sem minnsta gripsvit hafa um hvernig kvótakerfið hefur virkað allar götur og sérstaklega eftir 1990 þegar lög um frjálst-framsal tók gildi, áratugurinn frá 1995 -2005 varð ofboðsleg samþjöppun aflaheimilda með tilheyrandi afleiðingum fyrir sjávarbyggðir og íbúa, gjörningurinn hin pólítíska sýn var fjármögnuð að mestu leyti af ríkisbankanum (LÍ-bankanum) m.ö.o. það var sameiginleg sýn stjórnmálanna (þvert á flokka) með dyggum stuðningi Hafró að fækka útgerðum í landinu, illu heilli fyrir almenning í landinu og þjóðarbúið í heild.
Vegna þess að það er í fullu gildi þessi pólítíska-samtrygging um að hreyfa lítið/ekkert við sjálfri fiskveiðistjórninni/kvótakerfinu, þrátt fyrir engan árangur í uppbyggingu fiskistofna, þá er hægt að lagfæra brjálið t.d. að lækka hlutfall um framleigu innan fiskveiðiársins úr 50% í 25%, efla vistvænarveiðar með meiri aflaheimildum, raunverulega frjálsum handfæraveiðum, strandveiðar teknar út úr fiskveiðistjórninni í 4-mánuði.
Heimavigtunarleyfin verði aflögð það lágmarkar framhjá-löndun, endurvigtunarleyfin verði undir opinberueftirliti, það lámarkar ísprufusvindl, geymsla á fiski á milli fiskveiðiára verði aflagt, fisktegundir t.d. ufsi og flatfiskur teknar út úr kvótakerfinu það minnkar brask með aflaheimildir, það stuðlar að nýliðun, selja allan fisk á fiskmarkaði, það býr til heilbrigða-samkeppni í sjávarútvegi.
Ps. Brim er handhafi aflaheimilda langt yfir kvótaþakinu sem er 12%, samtektar-rannsóknarskýrsla sem er á næsta leyti mun sýna það ásamt öðrum eignatengslum í öðrum atvinnugreinum hjá ríkistyrkrektu-einokunar-útgerðinni. Veruleikinn er að kvótakerfið gengur upp í exel skjalinu, það gengur hinsvegar ekki upp í veruleikanum nema með brottkasti/framhjálöndun/ísprufusvindli/atvinnuofbeldi og launaþjófnaði það er feikna mikilvægt að almenningur/þingmenn/ráðherrar/bæjarfulltrúar geri sér þetta ljóst núna og bregðist við með viðeigandi hætti fyrir komandi kynslóðir.“