Björn Þorláksson skrifaði:
Kannski var það barnaskapur að fólki dytti í hug að klofningsbrot úr Sjálfstæðisflokknum sem kallast Viðreisn, myndi ekki sjálft spillast á örskotsstundu þegar boðið var til sætis við kjötkatlana. Eftir höfðinu dansa limirnir. En þvílíkur skellur – eigi að síður. Margir luku lofsorði á Daða (sem þó er ekki góður fjármálaráðherra og horfir á heiminn að ofan og utan í stað þess að gæta hagsmuna hins venjulega skulduga manns, fyrir að segja það sem allir vissu í vikunni um maðkað samfélag stórútgerðarinnar. Nú skítur hann í nytina sína svo um munar. Skilur eigin aðdáendur eftir á köldum klaka.
Er það vegna þess að Guðmundur vinalausi í Brimi, vinur Viðreisnar, er búinn að taka völdin í umræðunni á bak við tjöldin?
Er það vegna þess að Samherjamenn höfðu samband við ráðherrann?
Er yfirhöfuð í lagi stjórnsýslulega að tala eins og ráðherrann gerir nú á viðkvæmum punkti þegar mál er fyrir dómstólum vegna Namibíumálsins?