Margir hafa velt fyrir sér hvers vegna danskur blaðamaður á Berlingske hafi notað Rauða þráðinn á facebook í gær til að kynna frétt sína um afskipti Íslendinga af fréttaskrifum Danans.
“Þessi umræðuhópur er vettvangur fyrir umræðu um samfélagsmál og sósíalisma. Öllum er heimilt að taka þátt en almennrar kurteisi er krafist. Ummæli í hópnum eru á ábyrgð þeirra sem láta þau falla,” segir í lýsingu á Rauða þræðinum.

Á laugardag sögðu sumir innlendir fréttamiðlar frá frétt Berlingske um spillingu í íslenskum sjávarútvegi og hvernig spillingin nær inn í pólitíkina þar sem sumir þingmenn ganga erinda stórútgerðarinnar. Mogginn, eina dagblað landsins, hefur hingað til þagað þunnu hljóði og látið eins og engin frétt hafi verið skrifuð. Morgunblaðið er fjármagnað af útgerðinni og er gefið út sem málgagn útgerðarinnar. Blaðið berst meðal annars gegn aðild að ESB. Óbreytt ástand hagnast leiðandi fyrirtækjum í ljósi fákeppnisyfirburða þeirra og nýtingar á ríkiseignum fyrir lítið.
Blaðamaðurinn sem um ræðir, Emil Eire Frerk Olsen, segist hafa rætt við 19 heimildir hér innanlands áður en hann birti úttektina. Hann segir ófagra sögu af spillingu inni í stórútgerðinni og í hagsmunagæsluliðinu í kring.
Blaðamaðurinn segir þá Pál Vilhjálmsson og Pál Steingrímsson hafa sent sér fjölda erinda eftir að hann sendi Samherja fyrirspurn. Nafnarnir hafi varað hann við því að fjalla um málið. Báðir hafa Pálar þessir ítrekað komið Samherja til varnar í skrifum sínum og hafa þeir látið ýmsa aðra blaðamenn sem fjallað hafa með gagnrýnum hætti um sjávarútvegsmál þurft að grípa til varna eftir kærur.
„Þú ert í mjög miklum vandræðum ef þú ert kominn langt í rannsókn þinni.“
„Ég fer ekki fram á að þú trúir mér, ég er bara að vara þig við.“
Þetta eru skilaboð sem Pálarnir sendu danska blaðamanninum að hans sögn. Olsen skrifar um að valdamiklir einstaklingar í sjávarútvegi noti ítök sín til að þagga niður í gagnrýnisröddum. Það er í anda þess sem skrifað var um í síðustu bók sem komið hefur út hér á landi um spillingu.
Ísland hefur fallið niður í 17. sæti yfir alþjóðlegt fjölmiðlafrelsi og sker sig frá hinum Norðurlöndunum. Ástandið er ekki félegt um þessar mundir í fjölmiðlaheiminum eins og flestir gera sér grein fyrir.
Gunnar Ingi Jóhannsson hæstaréttarlögmaður sem oft hefur varið blaðamenn fyrir dómstólum segir nánast daglegar árásir á trúverðugleika blaðamanna sem fjalla um íslenskan sjávarútveg.
Myndin að ofan er skjáskot af frétt Rúv þar sem fjallað er um afskipti Pálanna af vinnu danska blaðamannsins.