Lágkúruleg gremjupólitík Miðflokksins

Atli Þór Fanndal, fyrrverandi blaðamaður, spillingarrannsakandi og núverandi verkefnastjóri, segir að hann minnist þess ekki að pólitísk umræða fyrir sveitarstjórnarkosningar hafi verið eins inntakslaus og nú.

Þetta kom fram á Samstöðinni í gærkvöld.

Atli Þór segir að ekki sé bót í máli að með innkomu Miðflokksins vaxi vegur þess sem hann kallar „gremjupólitík“ mjög. Miðflokksframbjóðendur nefna að sögn Atla aldrei hvernig Miðflokkurinn vilji laga það sem aflaga fer.  Flokkurinn boði aftur á móti linnulaust vantraust, útlendingar séu vondir, fortíðin hafi verið betri, endalaust standi yfir leit að blórabögglum.

„Miðflokksmenn þurfa á því að halda að við vantreystum náunganum,“ segir Atli. Allt sé alltaf öðrum að kenna.

Sjá umræðu við Rauða borðið hér: https://youtu.be/5Eit1r174Nk?si=zh7WJP8WI4zggXGm

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí