Þetta er ekki boðlegur málflutningur á Alþingi

„Meirihlutinn hér kann augljóslega ekki að skammast sín. Fólkið sem stöðugt lýsir áhyggjum af upplýsingaóreiðu tekur hér upp á hinum ýmsu furðubrögðum til að drepa málum á dreif þegar staðreyndirnar liggja fyrir og það frá Evrópusambandinu sjálfu, þýtt af utanríkisráðuneyti Íslands.

Þetta sagði Sigmundur Davíð á Alþingi á föstudaginn var. Og hann hélt áfram:

„Menn gera sér upp fávísi, þykjast ekkert skilja og svo þessi furðulega brella sem háttvirtur þingmaður Sigmar Guðmundsson endurvakti hér, að halda því fram að „okkur finnst þetta“ og „þið segið þetta“, þó að þau séu að halda fram tómri dellu og við séum að benda á staðreyndir, en af því að það eru ólíkar skoðanir þá bara verðum við að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu til að vita hver hefur rétt fyrir sér.

Þetta er ekki boðlegur málflutningur á Alþingi, frú forseti. Ég tek undir athugasemd háttvirts þingmanns Guðlaugs Þórs Þórðarsonar hér áðan. Mér finnst alveg tilefni til þess að forseti minni þingmenn á það hvernig eigi að bera sig að hér og leyfi þeim ekki að komast upp með að tala í tvær mínútur um einhverja tóma þvælu eins og eftirlátið var háttvirtum þingflokksformanni Viðreisnar.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí