Hvers­konar borg viljum við?

Bolli Héðinsson, hagfræðingur skrifaði:

„Það er ekki tilviljun heldur meðvituð ákvörðun sem veldur því að Reykjavík hefur breyst frá því að vera hús á stangli í alvöru borg. Þetta hefur gerst á miklu styttri tíma en fólk gerir sér grein fyrir og sú þróun tók kipp fyrir um 30 árum. Meðal þess sem gerir bæ að borg eru fjölbýlishús staðsett inni í borginni en ekki í úthverfum þar sem túnin sem húsunum fylgja eru svo stór að þar mætti stunda heyskap. Með tilkomu borgarhúsanna hefur ásókn í að búa miðsvæðis aukist til muna og blokkaríbúð í miðborg er orðinn valkostur fyrir marga í staðinn fyrir fjölbýlishús í úthverfum með kostum þeirra og göllum.

Reykjavík, eða a.m.k. miðsvæði hennar, er sá staður sem flestir sækja til vinnu að morgni og snúa þaðan síðdegis svo umferðarþunginn er mikill. Spurningin er hvernig á að koma öllu þessu fólki á milli staða því fjöldinn á bara eftir að aukast. Í borgarstjórnarkosningunum eru í framboði flokkar sem boða breikkun gatna og lagningu nýrra vega til að bregðast við umferðarþunganum líkt og vegirnir kosti lítið og taki óverulegt pláss. Ef sú leið yrði farin þá einfaldlega endum við í sama farinu og fjöldi annarra borga, einkum í Bandaríkjunum, með vegi og hraðbrautir sem skera mundu borgina á viðkvæmustu stöðum.

„Hinn íslenski úrtölumaður“

Það er til fólk sem ekur um á 20 millj. kr. jeppa en tímir samt ekki að fara í bílakjallara. Það bölsóttast yfir gangstéttum og hjólastígum og að geta ekki lagt hvar sem því þóknast. Þetta sama fólk hefur allt á hornum sér þegar talið berst að almenningssamgöngum jafnvel þó þær geri ekki annað en greiða þeim leið þó þau muni aldrei nota þær sjálf.

Fyrir rúmum 40 árum var ákveðið að byggja nýja flugstöð á Keflavíkurflugvelli. Bandaríkjamenn komu með tillögur að flugstöð sem gerði ráð fyrir að farþegafjöldinn um stöðina ætti eftir að aukast. Þá brást við „hinn íslenski úrtölumaður“ í öllu sínu veldi og krafðist þess að flugstöðin yrði minnkuð. Það varð úr og við þekkjum öll á hverju hefur gengið á síðan með stöðugum viðbyggingum og reddingum. Hinn íslenski úrtölumaður fer nú mikinn þegar á að færa almenningssamgöngur í það horf sem þekkist í nágrannalöndum okkar. Allt of mikið og allt of dýrt segir úrtölumaðurinn þó svo ríki og sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafi öll lokið upp einum rómi og samþykkt að fara í gagngera endurgerð almenningssamgangna. Úrtölumaðurinn er samur við sig og áttar sig ekki á að það eru hagsmunir hans og jeppans að sem flestir noti almenningssamgöngur. – Ætlum við að láta þetta eftir úrtölumanninumÚrtölumaðurinn er í framboði í nokkrum flokkum, viljum við svona borg eins og úrtölumaðurinn boðar?“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí