Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra vill aukna stýringu á innflytjendum til Íslands eins og fram kom í grein sem ráðherrann birti á Vísi í morgun. Þar kom fram að síðustu ár hafi um 50.000 innflytjendur flust til Íslands sem veldur að sögn ráðherrans miklu álagi á skóla og marga aðra innviði.
Í samtali við fréttastofu Sýnar boðar Þorbjörg Sigríður fyrir hönd Viðreisnar harða innflytjendastefnu. Ráðherra hyggst fara svokallaða norska leið sem gerir strangar kröfur um færni og menntun ef fólk vill flytja inn í landið.
„Þeir [Norðmenn] breyttu einfaldlega um kúrs og hugsuðu dvalarleyfiskerfið sitt út frá því, hvaða fólk er það sem atvinnulífið er að kalla eftir. Hver er þörfin og hvað viljum við. Það má kalla þessa stefnu harða innflytjendastefnu, en í reynd er verið að tala miklu frekar um stefnu sem byggir á því að tryggja velferð allra íbúa landsins til lengri tíma litið,“ segir Þorbjörg í samtali við fréttastofu Sýnar.
Þeir Stefán Pálsson, VG og Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, takast meðal annars á um þessa afstöðu ráðherrans og Viðreisnar við Rauða borðið á Samstöðinni í kvöld.
Tekið skal fram að stærstur hluti innflytjenda hér á landi sinnir störfum ófaglærðra, störfum sem Íslendingar hafa ekki sjálfir sótt í seinni ár. Á það við um verkamannastörf, ýmsa umönnun og ekki síst ferðaþjónustu sem er mjög mannaflsfrek grein.