Henry Alexander Henrysson heimspekingur telur að stjórnsýslubreytingar sem fylgi nýjum háttum Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra og miði að því að halda trausti óröskuðu, kunni að hafa nokkuð um það að segja hve skamman tíma það tók að knýja fram málalok í hneyksli ríkislögreglustjóra.

Henry sem látið hefur sig siðferðisleg álkitamál og spillingar- og hneykslismál miklu varða, nefnir tvö önnur mál, annað er varðar mál Þórðar Snæs sem sagðu sig í fyrra fyrir kosningar frá þingsæti í kjölfar afhjúpunar Spursmála á gömlum og meiðandi skrifum frambjóðandans sem og afsögn barnamálaráðherra og veltir fyrir sér hvort Kristrúnaráhrifin séu að verki í öllum þessum málum þremur.
Nýnæmi er hve lúkning spillingar- og hneykslismála tekur skamman tíma, sem gæti gefið fyrirheit um að meira sé nú horft til trausts og siðferðis og almannaheill en var á tímum gömlu valdaflokkanna.
Þá ræðir Henry ógnir samfélagsmiðla, sem hann segir í höndum eigenda sem gangi ekkert gott til. Einnig ræðir hann viðsjárverða orðræðu sem grafi undan gildum og sé að smitast hingað til lands frá BNA.
Samtal Björns Þorlákssonar við Henry verður á dagskrá Rauða borðsins á Samstöðinni í kvöld.