Nú eru hjúkrunarrými kölluð biðrými

Heilgbrigðismál:

Sigurður Ágúst Sigurðsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík var í viðtali í þættinum Reynsluboltar á Samstöðinni þar se rætt var um hjúkrunarheimili og hversu erfitt hefur verið að manna þau. Þá hefur verið gripið til þess að nefna hjúrkunarrými biðrými. Þá er ekki sama krafa um fjölda starfsmanna. Til að mynda er einn hjúkrunfarfræðingur á vakt í sjö hæða hjúkrunarheimili með „biðrýmum“.

„Þarna ert þú að vísa í það að það er verið að byggja hjúkrunarheimili og fela hagnaðardrifnu fyrirtækjum að reka heimilin. Grund, Hrafnista, Skjól og fleiri heimili eru ekki hagnaðardrifin. Nú er verið að færa þetta í hendur á rekstraraðilum, sem mér sýnist að hafi ekki mikið vit á rekstri hjúkrunarheimila. Nú er verið að kalla þetta öðru nafni en hjúkrunarheimili.

Nú er það ekki hjúkrunarrými, heldur biðrými. Og hvað þýðir það? Það þýðir að þar þarf ekki að manna þann rekstur jafn mörgum starfsmönnum og er á hjúkrunarheimilum, sem eru ekki hagnaðardrifin.

Þetta er sjö hæða hjúkrunarheimili. Það er einn hjúkrunarfræðingur á vakt á þarf því að ferðast um sjö hæðir til að geta sinnt þeim sjúklingum sem þurfa á aðstoð að halda. Svo er margt, af þessu ágæta starfsfólki útlendingar sem hvorki tala né skilja íslensku.“

Auk Sigurðar voru viðmælendur þau Drífa Sigfúsdóttir og Guðbrandur Stígur Ágústsson.

Hér er hægt að horfa á allan þáttinn.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí