Þegar ég labbaði um Facebook í morgunsárið sá ég að fleiri voru að minnast þess að 200 ár eru frá fæðingu frænda míns Benedikts Gröndal en að 18 ár væru frá Hruninu, deginum þegar Geir H. Haarde bað Guð að blessa Ísland. En þetta segir kannski ekkert um heiminn, aðeins um þá vini sem Facebook velur mér.
En ég spyr samt; er Hrunið hætt að skipta máli í íslenskri samfélagsumræðu?
Í Bandaríkjunum er sagt að óréttlætið sem fólst í því hvernig Obama-stjórnin tók á hruninu, bjargaði hinum ríku en lét hrunið falla yfir almenning, sé veigamesta forsendan fyrir uppgangi Trump (tilflutningur á atkvæðum hluta lágstétta frá demókrötum til repúblikana). Hér heima hrundi fylgi Samfylkingarinnar og til urðu Píratar, Flokkur fólksins og Miðflokkur. En nú er Samfylkingin aftur orðin stór (og stórust) svo það kann að vera merki um að gárur Hrunsins hafi fjarað út og það skipti litlu máli, að við séum komin útur tímabili eftirhrunsáranna.
Aukaspurning: Var Geir H. Haarde bænheyrður? Blessaði Guð Ísland?
-gse