„Við finnum mikinn hlýhug, margir hafa tvöfaldað áskriftargjald sitt, aðrir hafa reitt fram eingreiðslu til Samstöðvarinnar. Það gefur okkur aukinn kraft fyrir útsendingarmaraþonið á þriðjudaginn að finna svo mikinn stuðning frá almenningi, þ.e.a.s. eigendum Samstöðvarinnar,“ segir Gunnar Smári Egilsson ritstjóri.
Milljónir hafa safnast síðustu daga síðan fjársöfnunarátak Samstöðvarinnar hófst. Samstöðin efnir til átaksins vegna viðhalds og tækjakaupa. Dráttur á fjölmiðlastyrk hefur einnig komið Samstöðinni illa.
Viðbrögð bakhjarla, einkum þeirra sem greiða mánaðarlegan stuðning, eru hins vegar til marks um það að Íslendingar líta svo á sem bjarga verði Samstöðinni. Hámarki nær fjársöfnunin á fullveldisdaginn, 1. desember nk. Þá verður órofin bein dagskrá frá klukkan 08 að morgni og fram að miðnætti.
„Þetta verður 16 klukkustunda útsending, vonandi gæðaútsending,“ við tjöldum öllu til,“ segir Gunnar Smári.
Á vefnum samstodin.is má finna leiðbeiningar um hvernig fólk sem ætlar að styrkja Samstöðina ber sig að.
Sjá umræðu Gunnars Smára og Björns Þorlákssonar í gær um söfnunina hér: