Tugir senda Samstöðinni þakkarorð

Næsta þriðjudag, fyrsta desember, klukkan 8 að morgni, hefst lokahnykkur  fjáröflunarátaks Samstöðvarinnar. 16 klukkustunda bein útsending.

Velunnarar Samstöðvarinnar, fólk sem heldur fjölmiðlinum gangandi með fjárstuðningi, hefur sent fjöldann allan af skilaboðum til ritstjóra og einnig samstarfsmanna undanfarið þar sem lýst er hve miklu máli Samstöðin skiptir fólk persónulega. Og ekki síður samfélagslega. Hér á eftir fara nokkur ummæli sem birst hafa á síðum starfmanna eða í gegnum Samstöðina:

„Mér líður eins og mér hafi verið boðið inn í háskóla án skólagjalda í alls konar nám alla þá daga sem Samstöðin er í stuði og þið eruð oftast í stuði.“

„Samstöðin er kraftaverk og verður að lifa“.

„Gangi ykkur allt að sólu. Samstöðin er svo MIKILVÆG og má ekki leggjast af! Við hjónin horfum mikið á Samstöðina og viljum stuðla að áframhaldandi rekstri hennar.”

“Samstöðin er einfaldlega best. Upplýsandi,fræðandi, fjölbreytt etc. Gangi ykkur sem allra best.”

“Ég vil líka nota tækifærið og þakka ykkur fyrir að halda úti þessu sjónvarpi og þeirri góðu umræðu sem þar fer fram og ég fylgist oft með. Takk fyrir mig og baráttukveðjur.”

“Hef ánægju af að fylgjast með ykkar góðu dagskrá sem ég vil ekki missa af skjánum. Horfi eitthvað á Samstöðina hvern einasta dag.”

“Að þið gefið ykkur og viðmælendum tíma fyrir samtalið og dýptina, ólíkt Silfrinu og slíkum þáttum. Að þú þaulspyrjir Nei-ara eins og Já-ari, og öfugt, hvað svo sem umræðuefnið er. Að þið séuð að tala um vinstrið, fyrir að auðmenn greiði meiri skatt, að vinstri velferð og hægri hagstjórn sé fjárhagslegur ómöguleiki. Að peningarnir sem vantar á spítalann og menntakerfið, og í opinbert húsnæðiskerfi, hafi árum saman verið greiddir í arð til einhverra sem fólk virðist halda að hafi bara verið svona duglegir og eigi auðinn skilið. Það verður að halda áfram hrekja þessa mýtu, því mörg hafa aldrei heyrt að þjóðfélagið og heimurinn gætu verið öðruvísi. Allavega, áfram Samstöðin! Samstöðin er nauðsyn. Áfram þið!”

“Ég hlusta mikið á þættina ykkar á Samstöðinni. Gangi ykkur sem allra best og kærar þakkir fyrir frábær samtöl og samfélagsrýni. Bestu þakkir fyrir ykkar frábæra starf. Samstöðin er hverrar krónu virði!”

”Mér finnst Samstöðin gera mikið gagn, skipta miklu máli. Vil ekki vera án ykkar. Ef ég væri efnuð mundi ég greiða miklu meira. Ég hlusta á Samstöðina í bílnum og valið efni á YouTube, frábærir þættir hjá ykkur. Ég óska ykkur öllum velfarnaðar í baráttunni við að helda Samstöðinni gangandi.”

“Ég hlusta mjög mikið alveg frá upphafi. Mér fannst eiginlega Samstöðin frelsandi frá hinni gegnsýrðu áróðursvél glæpavestursins sem ég kýs að kalla þá sem fremja þjóðarmorð í Palestínu. Þessi stöð er ómissandi og eitt það besta sem gert hefur verið fyrir land og þjóð – fræðandi -skemmtileg og skýr óritstýrð umræða .”

“Góður skóli um dægurmál sem önnur mál fyrir unga sem aldna. Við hjónin horfum töluvert á ykkar efni og viljum endinlega hafa Samstöðina áfram. Þú mátt hækka mig upp í næsta þrep.”

“Frábær stöð og gangi ykkur vel með allt 🙂”

“Takk fyrir magnaða stöð. Samstöðin verður að halda áfram að lifa og blómstra. Er mjög ánægð með ykkur og mikilvægt hlutverk ykkar. Góð stöð og mikið horft á ykkur á heimilinu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí